Tómas Björnsson gengin í rađir TV.

  Nú í vikunni gekk Tómas Björnsson, Vík, yfir í Taflfélag Vestmannaeyja, hann er međ 2160 Íslensk stig og á skráđar 943 skákir og ţví međ reyndustu skákmönnum hérlendis.

  Viđ bjóđum Tómas velkominn í félagiđ en hann verđur öflugur liđsmađur nú ţegar viđ leggjum kapp á ađ verđa sterkir í 1 deildar keppninni í haust og ekki síđur ađ freista ţess ađ koma B-sveitinni upp í 3 deild.


Skáksetriđ komiđ í sumarbúning.

  Ţá hefur húsnćđi Taflfélags Vestmannaeyja ađ Heiđarvegi 9 loksins veriđ málađ og ku orđiđ mikill sómi ađ.  Um síđustu helgi var haldin Goslokahátíđ í Vestmannaeyjum og ţar sem húsiđ stendur í miđbćnum var lagt kapp á ađ klára málunina fyrir ţá helgi, sem tókst.

  Höfđu margir gestir á hátíđinni orđ á ţessari breytingu viđ félagsmenn.

  Verkstjórn međ ţessu verki var í höndum Ţórarins I. Ólafssonar og naut hann ađstođar Stefáns Gíslasonar, en e.t.v. komu ţar fleiri ađ, sem ég hirđi ekki um ađ nefna nú.

  Nú ţarf bara ađ smella mynd af húsinu og setja hér viđ ţessa frétt.


Skáksetriđ málađ í nćstu viku.

  Ţađ gćti flokkast undir stórfréttir ţegar lúinn múrinn á Skáksetrinu ađ Heiđarvegi 9 í Vestmannaeyjum fćr loksins andlitslyftingu á nćstu dögum.  Ţađ hefur lengst svolítiđ í ţví ađ ţessar framkvćmdir hafa komist á koppinn, en nú er semsagt búiđ ađ útvega málningu og nokkrir vaskir Taflfélagsmenn og velunnarar ćtla ađ skella sér í verkiđ og láta braka í sér.
http://www.varmahlidarskoli.is/myndir_08_09/Mynd_vikunnar/JGJ_1008.JPG  Verđur liturinn einhvern veginn svona ?

Ný sveit í burđarliđnum.

  Á undanförnum árum höfum viđ í Taflfélagi Vestmannaeyja yfirleitt sent 4 sveitir á Íslandsmót skákfélaga.  Eina yfirleitt sterka sveit sem hefur veriđ í 1 deild fyrir utan síđasta ár (A-sveit), síđan sveit skipuđ okkar sterkustu heimaskákmönnum auk valinkunnra hjálparmanna (B-sveit), svo sveit sem hefur veriđ skipuđ minni spámönnum og ýmsum góđvinum okkar (C-sveit) og loks unglingasveit, sem eru skipuđ Vestmannaeyskum skákkrökkum ađ mestu (D-sveit).

  Nú gćti orđiđ nokkur breyting á ţessu, ţar sem Ólafur Hermannsson félagi í TV og fyrrum formađur og félagar hans í skákklúbbnum "Frakkalafin" hafa ţađ nú til rćkilegrar íhugunar ađ mynda  saman eina sveit félagsins (hugsanlega E-sveit) á nćsta vetri.

  Ţessari nýbreytni tökum viđ ađ sjálfsögđu afar vel og gerir ţetta ekkert nema ađ lífga upp á hinn fjölmenna TV-hóp á mótinu.


Ólafur gaf félaginu skákbćkur sínar.

 Í kvöld fćrđi Ólafur Hermannsson, fyrrum formađur TV (1979-82), Taflfélaginu skákbókasafn sitt ađ gjöf. Safniđ inniheldur 57 skákbćkur og 25 árganga af Tímaritinu Skák.  Formađur félagsins, Karl Gauti Hjaltason, tók viđ gjöfinni, og tók undir óskir Ólafs um ađ bćkurnar yrđu notađar viđ kennslu og störf félagsins.

Ólafur safnađi ađ eigin sögn ţessum bókum á sl. 30 árum. Međal annars pantađi hann flestar ţeirra frá útgáfufélaginu Bastford í gegnum Mál og Menningu og sagđi hann okkur ađ stundum hafi ţćr veriđ marga mánuđi á leiđinni í póstkröfu. Í safninu má m.a. finna bestu skákir Fischers (The Games of Robert J. Fischer) frá 1972,  bestu skákir Tals (Complete Games of Michael Tal 1936-1959), allnokkrar bćkur um skákbyrjanir, allar skákbćkur sem ţýddar voru á íslensku, átta árganga af Informator og fleira og fleira.

Kunnum viđ í Taflfélagi Vestmannaeyja Ólafi bestu ţakkir fyrir gjöfina og heitum ţví ađ notfćra okkur bćkurnar sem best í komandi framtíđ.

 - BÍK


Bókagjöf í kvöld kl. 20.

  Fyrrum formađur Taflfélags Vestmannaeyja, Ólafur Hermannsson, sem var formađur TV á árunum 1979 - 1982 hefur óskađ ţess ađ hitta forsvarsmenn félagsins í kvöld og mun hann hafa í hyggju ađ gefa félaginu skákbćkur.

  Í kvöld, ţriđjudag kl. 20:00 munum viđ hitta Ólaf niđri í Skáksetri.


Sćvar međ brons á Skákţingi Norđlendinga

Í dag var tefld lokaumferđin á Skákţingi Norđlendinga. Sćvar gerđi jafntefli viđ Sindra Guđjónsson og tryggđi međ ţví bronsverđlaun á mótinu og lauk keppni međ 5 vinninga. Gylfi Ţórhallsson varđ efstur međ 6 vinninga sem og Áskell Örn Kárason . Gylfi var úrskurđađur sigurvegari á stigum.

Einar K Einarsson tefldi einnig á mótinu og byrjađi vel vann 2 fyrstu skákirnar en síđan snérust heilladísirnar gegn honum og hann tapađi m.a. međ Vodafone gambít í nćstsíđustu umferđ.


Sćvar ţriđji á Skákţingi Norđlendinga.

  Félagi okkur úr Taflfélagi Vestmannaeyja, Sćvar Bjarnason er í ţriđja sćti međ 4,5 vinninga eftir nćst síđustu umferđ á Skákţingi norđlendinga sem fram fer á Akureyri.  Í síđustu umferđinni sem fram fer á morgun teflir Sćvar viđ Sindra Guđjónsson.  Nú eru ţeir Gylfi Ţórhallsson (2232) og Áskell Örn Kárason (2239) efstir međ 5 vinninga.  Lokaumferđin hefst kl. 10.

Grandelius í 2 sćti á mótinu.

  Í síđustu umferđinni gerđi Nils Grandelius (2491) sem er félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja jafntefli viđ Tiger (2618) sem tefldi til margra ára međ Selfyssingunum (SSON).  Ađ loknu mótinu er ljóst ađ okkar mađur, sem er lang stigalćgstur er í öđru sćti.

Sigeman & Co Chess Tournament 2009
  
Elo
1
2
3
4
5
6
 
Points
Place
1
GM Tomi Nybäck
2655
 0
˝
˝
1
˝
 
3 - 4
2
GM Nigel Short
2674
1
 
˝
1
1
1
 
1
3
GM Tiger Hillarp Persson
2618
˝
˝
 
0
0
˝
 
5
4
GM Ivan Sokolov
2669
˝
0
1
 
1
0
 
3 - 4
5
GM Emanuel Berg
2610
0
0
1
0
 
0
 
1
6
6
IM Nils Grandelius
2491
˝
0
˝
1
1
  
3
2

 


Grandelius vann í 4. umferđ

Nils Grandelius (2491), nýjasti međlimur Taflfélags Vestmannaeyja, sigrađi Emmanuel Berg (2610) í 4. umferđ Sigeman-skákmótsins sem fram fer í Malmö í Svíţjóđ. Nils er međ 2,5 vinning og er ađ hćkka mikiđ á stigum. Frábćr árangur hjá okkar manni sem er eftir umferđina í 2.-3. sćti ásamt Ivan Sokolov á eftir Short, sem hefur unniđ allar sínar skákir til ţessa.

Í öđrum skákum gerđu Nybaack og Sokolov jafntefli og ţegar ţetta er ritađ eru Short og Tiger Hillarp Persson enn ađ tafli.

Sigeman-skákmótiđ.

 

- BÍK

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband