Þakkir til foreldra skákkrakkanna.

Þakkir.
  Hér með vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu foreldrum skákkrakkanna sem hafa verið óþreytandi að hjálpa til við að gera þetta norðurlandamót sem best úr garði.

  Þeir óku gestunum hvert sem þau vildu fara og gerðu allt til gera þessa dvöl þeirra sem ánægjulegasta.

  Nefni nokkra hluti :

  Fullt af krökkum og foreldrum fóru í pysjuleitina á föstudagskvöldin.
  Mæðurnar sáu um kaffi og kökur í öllum fimm umferðunum og gáfu gestunum
.
  Fjölmargar akstursferðir með gestina alla dagana.
  Þrifu keppnissalinn eftir mótið.
  Útvegðu drykki og meðlæti í stórum stöflum á mótið.
  Fóru stórskemmtilega rútuferð með alla gestina.
  Fiskasafnið gaf félaginu ókeypis skoðunarferð fyrir alla gestina á mótinu.
  Bíóið opnaði fyrir okkur og hélt aukasýningu á eldfjallamyndinni.
  Viking fór aukaferð með gestina.
  Gerðuð keppnissalinn klárann fyrir mótið.
  Hestleiga Ásu tók endalaust við áhugasömum reiðmönnum í reiðtúra.
  Og svona má lengi telja.

  Þið eru frábær !


NM silfur til Eyja.

   Nú er lokið Norðurlandamótinu í skólaskák í Vestmannaeyjum og Eyjamenn náðu þeim frábæra árangri að ná silfurverðlaunum, en fyrir tveimur árum þá varð sveit héðan einnig í 2 sæti svo þetta er jöfnun á þeim árangri.

Lokastaðan.
1. Korsvoll skole, Noregur 13,5 vinn.
2. Grunnskóli Vestmannaeyja 10,5 vinn. (5 stig).
2. Gustavslundskolan, Svíþjóð 10,,5 vinn (5 stig).
4. Rimaskóli, Reykjavík, 10 vinn.
5. The English School, Finnland 10 vinn.
6. Jyderup Kommuneskole, Danmörk 5,5 vinn.

Árangur sveitarmeðlima:

1 borð Daði Steinn Jónsson 3 vinn. af 5.
2 borð Kristófer Gautason  3,5 vinn. af 5.
3 borð Ólafur Freyr Ólafsson 2 vinn. af 5.
4 borð Valur Marvin Pálsson 2 vinn. af 4.
varam. Nökkvi Dan Elliðason 0 vinn. af 1.
Þjálfari : Björn Ívar Karlsson

 


Endatafl með riddara og biskup skipti miklu í lokin !

  Daninn Jonas Nielsen á fjórða borði og Patrekur Þórsson úr Rimaskóla áttust við í síðustu skák mótsins, þar sem Patrekur var með biskup og riddara og reyndi að máta danann.

  Þetta er fræðilega hægt en mjög erfitt, en ef það tekst ekki í 50 leikjum getur andstæðingurinn krafist jafnteflis, en auðvtiað verður hann að gera það sjálfur.

  Það var þannig að ef Patreki tækist að vinna hefði Rimaskóli náð að komast í 2 sæti, en ef ekki yrði skólinn í því 4.  Svo þetta skipti miklu máli og óhætt að segja að þarna hafi mikil ábyrgð verið lögð á litlar herðar.

  Það fór svo á endanum eftir rúmlega 160 leiki og 4,5 klukkustunda setu að yfirdómarinn slökkti á klukkunum og dæmdi jafntefli.

  Mótinu lauk því þannig að efstir urðu Norðmenn, en hnífjafnir í 2 sæti voru Grunnskóli Vestmannaeyja og Gustavslundskolan frá Svíþjóð með 10,5 vinninga og 5 stig og innbyrðis viðureign þeirra var líka jöfn svo verðlaununum var skipt og báðir skólar fá silfurverðlaun.


Jafntefli á móti Norðmönnum = Eyjar í 2 sæti !

  Síðasta umferðin hófst kl. 9:30 og lauk ekki fyrr en klukkan var farin að ganga í þrjú.  Eyjamenn áttust við efsta liðið Norðmenn.

En litum á síðustu umferðina :

  Eyjamenn - Noregur    2 - 2 ( 0.5 - 0.5 - 0 - 1 )
  Rimaskóli - Danmörk      2,5 - 1,5  ( 1 - 0 - 1 - 0.5 )
  Svíþjóð   -  Finnland       2 - 2  ( 0 - 1 - 0 - 1 )

Fyrsta borð : Daði Steinn Jónsson : Jafntefli eftir mjög viðburðaríka skák með sviptingum þar sem Daði Steinn lenti undir á tímabili, en náði að snúa taflinu sér í vil og náði ívið betra í restina en andstæðingur hans náði að jafna taflið og skákin endaði í jafntefli.  Hetjuleg barátta Daða Steins sem lauk mótinu með 3 vinninga í 5 skákum.  Sannarlega góð frammsitaða á fyrsta borði.
Annað borð : Kristófer Gautason :  Eftir að allt hafði verið í járnum í miðtafli var samið jafntefli svona til þess að leitast við að tryggja verðlaunasæti eftir að fyrsta sæti var út úr myndinni.  Kristófer lauk mótinu með 3,5 vinninga af 5 og var með hæsta vinningshlutfallið í sveitinni.  Kristófer hefur ekki tapað skák, unnið tvær og gert 3 jafntefli - Sannarlega góður árangur hjá honum á öðru borði.
Þriðja borð  : Ólafur Freyr Ólafsson : Hrikalega erfið skák og lengi vel var alllt í járnum.  Ólafur bauð jafntefli til að tryggja okkur verðlaun, en Norðmaðurinn hafnaði.  Í lokin náði Norðmaðurinn betri stöðu eftir uppskipti og tap var nið'urstaðan.  Ólafur náði 2 vinningum í heild.
Fjórða borð : Valur Marvin Pálsson : Mikill rússíbani hjá þeim þar sem vinningurinn hafði skipst áum hendur en loks náði Valur undirtökunum og þá var ekki að spyrja að því að hann innbyrti vinninginn.  Valur Marvin hlaut 2 vinninga úr 4 skákum, en varamaður hans Nökkvi Dan sat eina umferð, en tapaði í þeirri skák.

Staðan fyrir síðustu umferðina.
1. Norðmenn 11,5 vinn.
2. Eyjamenn 8,5 vinn.
3. Svíþjóð 8,5 vinn.
4. Finnland 8 vinn.
5. Rimaskóli 7,5 vinn.
6. Danmörk 4 vinn.

  Varamannamótið :

Síðasta umferð:
Jóhann Helgi (V) 3   - Nökkvi Dan (V) 3  0.5 - 0.5.
Sigurður (V) 3          - Patrekur (R) 2.      0 - 1.
Róbert Aron (V) 2    - Eida (N)  2         1 - 0.
Dennis  (S)  1          - Mette (D) 0.     1 - 0.

Úrslit í varamannamótinu.
1. Nökkvi Dan Elliðason  Eyjar  3,5 vinn. (12)
2. Jóhann Helgi Gíslason Eyjar  3,5 vinn. (9,5)
3. Sigurður Arnar Magnússon Eyjar  3 vinn. (11)
4. Róbert Aron Eysteinsson Eyjar 3 vinn (9,5)
5. Patrekur Þórsson Rimaskóli  3 vinn (6)
6. Elida Merke Noregur 2 vinn. (7)
7. Dennis Lennardsson Svíþjóð  2 vinn. (6)
8. Mette Ellegård Christensen 0 vinn.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Stórt tap gegn Finnum 0.5 -3.5.

   Þessi umferð var ekki hagstæð íslensku sveitunum sem báðar töpuðu nokkuð stórt.  Eyjamenn náðu aðeins hálfum vinningi á móti Finnum og Rimaskóli aðeins einum gegn Norðmönnum sem sitja í efsta sæti.

En svona fór fjórða umferð :

  Eyjamenn - Finnland  0,5 - 3,5  ( 0 - 0,5 - 0 - 0 )
  Rimaskóli - Noregur       1 - 3  ( 0 - 0 - 0 - 1 )
  Svíþjóð   -  Danmörk      3 - 1  ( 1 - 0 - 1 - 1 )

Fyrsta borð : Daði Steinn Jónsson : Eftir rúmlega 4 tíma setu og maraþon endatafl tapaði Daði Steinn á móti sterkasta keppanda mótsins Daníel Ebeling.  Endataflið hófst þar sem keppendur höfðu öll peðin og tvo riddara á mann og endaði á baráttu riddara og 4 peða, þar sem finnski keppandinn náði betri stöðu í lokin opg sigraði.
Annað borð : Kristófer Gautason :  Jafntefli í endatafli þar sem Kristófer var peði undir.
Þriðja borð  : Ólafur Freyr Ólafsson : Ólafur tapað.
Fjórða borð : Valur Marvin Pálsson : Valur tapaði eftir að hafa verið manni undir lengst af, en átti á tímabili góða möguleika á a' snúa á andstæðing sinn.

Staðan eftir 4 umferðir.
1. Norðmenn 11,5 vinn.
2. Eyjamenn 8,5 vinn.
3. Svíþjóð 8,5 vinn.
4. Finnland 8 vinn.
5. Rimaskóli 7,5 vinn.
6. Danmörk 4 vinn.

  Stór hópur útlendu gestanna fór í bátsferð með Viking núna kl. 15 - 16 í sól og blíðu.  Strákarnir okkar fóru á Hásteinsvöll, þar sem þeir fylgdust með leik ÍBV og Fylkis.  Nokkrar mömmurnar í hópi gestanna fóru í hestaferð kl. 11 og svo annar hópur kl. 17.  Áætlað er að fleiri hópar fari á morgun.

  Varamannamótið :

4. umferð (Tefld kl. 16:30)
Nökkvi Dan (V) 2,5 - Sigurður (V) 2,5 ..   1/2
Patrekur  (R) 1         - Róbert  (V) 2 .......  1 - 0.
Jóhann Helgi (V) 2  - Dennis  (S) 1 .......  1 - 0.
Mette Chr.  (D) 0      - Elida  (N) 1 ..........  0 - 1.

  Í sviga (V) = Vestmannaeyjar,
  Talan þýðir fjöldi vinninga.

Síðasta umferð:
Jóhann Helgi (V) 3   - Nökkvi Dan (V) 3 .
Sigurður (V) 3          - Patrekur (R) 2.
Róbert Aron (V) 2    - Eida (N)  2.
Dennis  (S)  1          - Mette (D) 0.


Eyjamenn unnu Dani 4-0 og eru í öðru sæti.

  Í höfn er stórsigur Eyjamanna á Dönum, þar sem strákarnir unnu á öllum borðum 4-0 og skellu sér þar með í annað sætið þegar tvær umferðir eru eftir.  Fyrst sigraði Valur Marvin á fjórða borði, síðan halaði Daði Steinn inn sigur á fyrsta borði eftir að hafa verið búinn að éta upp flesta menn andstæðingsins.  Þá sátu þeir Ólafur Freyr og Kristófer eftir að tafli, en þegar liðnir voru liðlega þrír tímar og stuttu síðar halaði Ólafur inn sinn vinning á þriðja borði.  Það var ekki fyrr en klukkan var að nálgast 2, sem Kristófer, sem sat á öðru borði, sneri hættulegri stöðu sér í vil og vann sigur á skammri stundu.  Stórsigur 4-0 var staðreynd og Eyjamenn svo sannarlega í toppbaráttunni.

Staðan.
1. Norðmenn 8,5 vinn.
2. Eyjamenn 8 vinn.
3. Rimaskóli 6,5 vinn.
4. Svíþjóð 5,5 vinn.
5. Finnland 4,5 vinn.
6. Danmörk 3 vinn.

  Í næstu umferð mæta Eyjamenn Finnlandi.

  Dagurinn heilsaði okkur hér í Eyjum með einmuna sól og blíðu.  Reiknað er með að flíta bátsferð fyrir keppendur og fara í dag kl. 15:00 í stað þess að fara á morgun eins og reiknað var með, þar sem spáin fyrir morgundaginn er verri.  Nokkrir foreldrar fara í hestareiðtúr núna kl. 11:00 og margt annað er í gangi fyrir gestina, t.d. bíóferð, gönguferð upp á Eldfell og heimsókn í fiskasafnið.

  En snúum okkur þá að þriðju umferð, sem nú er hafin á NM.

  Eyjamenn - Danmörk  4 - 0  ( 1 - 1 - 1 - 1 )
  Rimaskóli - Svíþjóð     2 - 2  ( 1 - 0 - 0 - 1 )
  Finnland - Noregur     1 - 3  ( 1 - 0 - 0 - 0 )

Staðan eftir 2 umferðir.
1. Noregur 5,5 vinninga
2. Rimaskóli er með 4,5 vinn.
3. Eyjamenn með 4 vinninga.
4-5. Svíþjóð og Finnland 3,5 vinninga,
6. Danmörk 3 vinn.

  Varamannamótið :

3. umferð.
  Róbert 1,5 (V) - Nökkvi Dan 2 (V)    0,5 - 0,5
  Dennis 1 (S)   - Sigurður 1,5 (V)    0-1.
  Elida 1 (N)      -  Jóhann Helgi 1  (V) 0-1.
  Mette 0 (D)    - Patrekur 0 (R) 0 - 1.

4. umferð (Tefld kl. 16:30)
Nökkvi Dan (V) 2,5 - Sigurður (V) 2,5
Patrekur (R) 1 - Róbert (V) 2
Jóhann Helgi (V) 2 - Dennis (S) 1
Mette (D) 0 - Elida (N) 1.


Lítill árangur í Pysjuleit kvöldsins.

  Stór hópur skákkrakka fór í pysjuleit í kvöld.  Gengið var undir leiðsögn eyjakrakka um hafnarsvæðið en ekki fannst nein pysja og það eina sem hópurinn fann var stærðar mávsungi.

  Veður var stillt og úðarigning og ágætis hiti.

  Fólk sem við hittum hafði margt fundið pysjur og leyfðu þau gestunum að halda á þeim og fá smá innsýn í stemninguna.


Jafntefli við Svíþjóð 2-2 í annarri umferð.

  Þá er annarri umferð lokið á NM.  Eyjamenn gerðu jafntefli við fyrnasterka Sænska sveit 2-2 og mótið er enn galopið.  Klukkan 19:30 þegar allar aðrar sveit höfðu klárað keppni, var enn teflt á 3 borðum í viðureign Eyjamanna og Svía.  Fyrst hafði Nökkvi Dan tapað á 4 borði, síðan samdi Ólafur Freyr jafntefli eftir miklar sviptingar, þá vann Kristófer andstæðing sinn og loks gerði Daði Steinn jafntefli.

Staðan.
1. Noregur 5,5 vinninga
2. Rimaskóli er með 4,5 vinn.
3. Eyjamenn með 4 vinninga.
4-5. Svíþjóð og Finnland 3,5 vinninga,
6. Danmörk 3 vinn.

  Í fyrramálið eigast Eyjamenn við Dani.

  Úrslit 2 umferðar voru þessi :

  Ísland (V) -  Svíþjóð :  2 - 2  ( 0,5 - 1 - 0.5 - 0 )

  Ísland (R) - Finnland : 2,5 - 1,5 ( 0 - 1 - 1 - 0,5 )

  Noregur - Danmörk  :  3 - 1 ( 1 - 1 - 1 - 0 )

  Varamannamótið :

  Valur Marvin Pálsson (V) - Markus Teigset  (N) =  1 - 0
  Sigurður A Magnússon (V) - Róbert A Eysteinsson (V) = 0,5-0,5
  Dennis Lennardsson (S) - Patrekur Þórsson (R) =   1 - 0
  Jóhann Helgi Gíslason (V) - Mette Elleg1ard (D) = 1 - 0.

3. umferð.
  Róbert (V) - Nökkvi (V) ...
  Dennis (S) - Sigurður (V) ...
  Elida (N) -  Jóhann Helgi (V) ...
  Mette (D) - Patrekur (R) ...


Pysjuleit í kvöld.

  Í kvöld kl. 22:00 förum við með útlendu gestunum í pysjuleit um bæinn.  Við hittumst fyrir utan Hótel Þórshamar.  Komið með pappakassa.

  Við viljum vita hverjir ætla að mæta til að fara með þeim og leiðbeina.


Allt í járnum á NM.

  Nýjustu fréttir á NM kl. 12:30.

  Þessar þjóðir eigast við í fyrstu umferð:

  Ísland                   -    Ísland           2  -  2  (1-1/2-1/2-0)
  Vestmannaeyjar        Rimaskóli
  Svíþjóð                 -    Noregur      1,5 - 2,5  (0-1/2-0-1)
  Danmörk              -    Finnland        2  -  2   (0 - 1 - 1 - 0).

Staðan.
1.     Noregur ............................................   2,5 vinn.
2-5. Ísland V, Danmörk, Finnland, Ísland R ..   2 vinn.
6.     Svíþjóð .............................................  1,5 vinn.

  Í varamannakeppninni er öllum skákum lokið :
  Mette Ellegård Chr. (D) - Sigurður A Magnússon (V)  0 - 1.
  Jóhann Helgi Gíslas. (V) -  Róbert A Eysteinsson (V)  0 - 1.
  Elida Brekke (N) - Dennis Lennertsson (S)                1 - 0.
  Patrekur Þórsson (R) - Nökkvi Dan Elliðason (V)        0 - 1.

Í 2 umferð eigast þessir við (að því tilskyldu að allir verði með) :
  Sigurður A Magnússon (V) - Róbert Aron Eysteinsson (V)
  Dennis Lennertsson (S) - Patrekur Þórsson (R)
  Jóhann Helgi Gíslason (V) - Mette Ellegård Chr. (D)
  Nökkvi Dan Elliðason (V) -  Elida Brekke (N).


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband