Nýjar heimildir fundnar um jólamót TV.

  Nú hafa fundist nýjar steintöflur í jörðu í Elliðaey, sem er ein úteyja Vestmannaeyja, sem veita Taflfélagi Vestmannaeyja fulla sönnun þess að Jólamótið er að sönnu ævafornt.  Við uppgröftinn fannst forn og rúnum rist steintafla, sem talin er vera rituð haustið 1000 eftir kristintökuna.

http://www.holar.is/tourist/myndir/fornl2.jpg Mynd frá uppgreftrinum í Elliðaey í sumar. Viðstaddur var fulltrúi frá SÍ, og sést grilla í hann á bak við hlaðna vegginn, ef grannt er skoðað. Á myndinni má sjá, f.v. fulltrúi frá Þjóðminjasafninu, fornleifafélaginu, aðstoðargjaldkeri TV, formaður Elliðaeyjafélagsins og loks fulltrúi femínista innan þjóðkirkjunnar.

  Þorleifur F. Steinsson fornleifafræðingur hefur ráðið í rúnirnar og segir textann hreinlega breyta íslandssögunni eins og við höfum þekkt hana því þar kemur fram að við Kristnitökuna hafi verið gerðar fjórar en ekki þrjár tilslakanir við siðaskiptin.  Eins og allir vita og kemur fram í íslendingabók Ara Fróða þá var mönnum áfram leyft að blóta á laun, bera út börn og éta hrossakjöt.  En Þorleifur segir að fjórða undantekningin sé "... að skákiðkun á jóladag í Vestmannaeyjum haldist  óbreytt eins og forn venja standi til ...".  Þetta sanni að á þessum tíma hafi jólamótið verið einn af hornsteinum menningarlífs í landinu.  Þá komi og fram  á steintöflunni að keppendur "skulr  ölr  vera en eigi óðr" og er Þorleifur að rannsaka þessa fornu reglu skáklistarinnar og kanna hvort  þessi regla hafi víðar tíðkast á þessum tíma.

http://wiki.khi.is/images/thumb/e/e5/800px-Asuri_yaztlar.jpg/180px-800px-Asuri_yaztlar.jpg Steintaflan góða sem nú er varðveitt hjá Elliðaeyjafélaginu.  Ef grannt er skoðað má sjá ofarlega til hægri skammstöfunina TV.

  Þorleifur vonast jafnvel til að finna fleiri góða muni í uppgreftrinum, kannski gamla farandgripi frá mótum þess tíma, en forfeður Stebba Gilla geymdu sína gripi iðulega út í úteyjum, a.m.k. yfir sumartímann.

 

http://images30.fotki.com/v476/photos/5/51140/1204330/02_08_2004061-vi.jpg Þorleifur í viðtali við greinarhöfund.  Myndin er reyndar tekin á tjaldstæðinu í Bjarnarey, þar sem Leifi, eins og hann er oftast kallaður, hafði rannsóknaraðstöðu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband