19.12.2009 | 18:17
Fleiri stúlkur en strákar á jólapakkamóti TV 2009
Vel heppnuðu jólapakkamóti Taflfélags Vestmannaeyja lauk í dag. Þátttakendur voru 21 og var skipt í þrjá flokka ; 1.-3. bekk, 4.-5. bekk og stúlknaflokki. Athygli vakti að stúlkurnar á mótinu voru 11 en strákarnir 10 og er það sennilega í fyrsta skipti í sögunni þar sem stúlkur eru fleiri en strákar á opnu skákmóti. Úrslit urðu eftirfarandi og hlutu verðlaunahafa glæsilegar innpakkaðar gjafir úr Oddinum og Krónunni. Einnig hlutu 4 heppnir keppendur happdrættisvinning.
1.-3. bekkur:
1. Máni Sverrisson 3,5 v.
2. Arnór Viðarsson 3 v.
3. Þráinn Sigurðsson 3 v.
4.-5. bekkur.
1. Sigurður Arnar Magnússon 6,5 v.
2. Davíð Már Jóhannesson 6 v.
3. Róbert Aron Eysteinsson 5,5 v.
Stúlknaflokkur.
1. Hafdís Magnúsdóttir 4 v.
2. Auðbjörg Helga Sigþórsdóttir 4 v.
3. Ásta Björt Júlíusdóttir 4 v.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.