15.10.2009 | 22:00
Ísfélagið sigraði í firmakeppni TV.
Í kvöld fór fram firmakeppni Taflfélags Vestmannaeyja. Alls tóku 39 fyrirtæki þátt í keppninni að þessu sinni og tefldu 11 skákmenn fyrir þeirra hönd. Fór keppnin þannig fram að skákmenn drógu nöfn fyrirtækja og í byrjun var úrsláttarkeppni en í lokin þegar aðeins 11 fyrirtæki stóðu eftir var keppt í 5 umferða monrad og tefldi hver skákmaður fyrir sitt fyrirtæki.
Fljótlega kom í ljós að Ísfélagið, Hjólbarðastofan og Síldarútvegsnefnd myndu berjast um efstu sætin og fór svo að lokum að enginn náði fulli húsi vinninga.
Úrslit.
1. Ísfélag Vestmannaeyja 4 vinn. (16)
2. Hjólbarðastofan 4 vinn. (13,5)
3. Síldarútvegsnefnd 3,5 vinn.
4. Eimskip 3 vinn. (15,5)
5. Glófaxi 3 vinn. (12,5)
6. Sparisjóður Vestmannaeyja 3 vinn. (9,5)
7. Huginn 3 vinn. (9)
8. Bifreiðastöð Vestmannaeyja 2,5 vinn.
9. Godthaab í Nöf 2 vinn.
10. Frár 1 vinn
11. Vinnslustöðin 1 vinn.
Þeir sem kepptu fyrir þessi ágætu fyrirtæki voru Sverrir Unnarsson fyrir Ísfélagið, Kristófer Gautason fyrir Hjólbarðastofuna og Nökkvi Sverrisson fyrir Síldarútvegsnefnd.
Taflfélagið vill þakka öllum þessum fyrirtækjum og líka hinum 28 fyrir góðan stuðning á árinu. Það er þeim að þakka að félagið státar að skákmönnum í fremstu röð bæði í krakkaflokkum og einnig á íslandsmóti skákfélaga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.