20.9.2009 | 16:20
Þakkir til foreldra skákkrakkanna.
Þakkir.
Hér með vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu foreldrum skákkrakkanna sem hafa verið óþreytandi að hjálpa til við að gera þetta norðurlandamót sem best úr garði.
Þeir óku gestunum hvert sem þau vildu fara og gerðu allt til gera þessa dvöl þeirra sem ánægjulegasta.
Nefni nokkra hluti :
Fullt af krökkum og foreldrum fóru í pysjuleitina á föstudagskvöldin.
Mæðurnar sáu um kaffi og kökur í öllum fimm umferðunum og gáfu gestunum.
Fjölmargar akstursferðir með gestina alla dagana.
Þrifu keppnissalinn eftir mótið.
Útvegðu drykki og meðlæti í stórum stöflum á mótið.
Fóru stórskemmtilega rútuferð með alla gestina.
Fiskasafnið gaf félaginu ókeypis skoðunarferð fyrir alla gestina á mótinu.
Bíóið opnaði fyrir okkur og hélt aukasýningu á eldfjallamyndinni.
Viking fór aukaferð með gestina.
Gerðuð keppnissalinn klárann fyrir mótið.
Hestleiga Ásu tók endalaust við áhugasömum reiðmönnum í reiðtúra.
Og svona má lengi telja.
Þið eru frábær !
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.