Grandelius vann í 4. umferð

Nils Grandelius (2491), nýjasti meðlimur Taflfélags Vestmannaeyja, sigraði Emmanuel Berg (2610) í 4. umferð Sigeman-skákmótsins sem fram fer í Malmö í Svíþjóð. Nils er með 2,5 vinning og er að hækka mikið á stigum. Frábær árangur hjá okkar manni sem er eftir umferðina í 2.-3. sæti ásamt Ivan Sokolov á eftir Short, sem hefur unnið allar sínar skákir til þessa.

Í öðrum skákum gerðu Nybaack og Sokolov jafntefli og þegar þetta er ritað eru Short og Tiger Hillarp Persson enn að tafli.

Sigeman-skákmótið.

 

- BÍK

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband