3.6.2009 | 23:26
Grandelius teflir á Sigeman skákmótinu
Nýjasti meðlimur Taflfélags Vestmannaeyja, hinn bráðefnilegi sænski skákmaður Nils Grandelius (2491), tekur þessa dagana þátt í gríðarsterku skákmóti í Malmö í Svíþjóð - Sigeman skákmótinu. Meðal þátttakenda er Nigel Short (2674), sem tapaði eftirminnilega í heimsmeistaraeinvígi gegn Garry Kasparov í London 1993 og er kunnugur Vestmannaeyingum eftir þátttöku sína í Alþjóðlega skákmótinu sem haldið var í Safnahúsinu í Eyjum 1985. Aðrir þátttakendur eru Svíarnir Emmanuel Berg (2610), liðsmaður Fjölnis, og Tiger Hillarp Persson (2618) sem teflt hefur með Selfyssingum, Finninn Tomi Nyyback (2655) og svo hinn eiturharði Ivan Sokolov (2669), sem hefur oftar en einusinni teflt á Íslandi, meðal annars undir merkjum Hróksins og hlotið með þeim Íslandsmeistaratitil. Sokolov er fæddur í fyrrum Júgóslavíu en hefur nú hollenskan ríkisborgararétt.
Nils hafði svart gegn Nybaack í fyrstu umferð. Svíinn tefldi vel og lyktaði skákinni með jafntefli eftir harða viðureign, sem verður að teljast góð byrjun á mótinu hjá okkar manni.
Öðrum viðureignum lyktaði þannig að Short vann Berg með afar vandaðri taflmennsku og Sokolov vann Tiger Hillarp með svörtu mönnunum eftir skemmtilega fórn.
Mótið stendur yfir frá 3.-7. júní og má nálgast frekari upplýsingar um það á http://www.sigeman-chess.com
- BÍK
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.