23.5.2009 | 23:13
Meistaramót Skákskólans - 5 umferðum lokið
Eftir 5 umferðir á Meistaramóti Skákskólans er staða okkar manna nokkuð samkvæmt stigum. Fyrstu 3 umferðirnar voru tefldar á föstudagskvöld (atskák), en síðan voru umferðir 4-5 tefldar í dag. Keppendur á mótinu eru 27 og eru flestallir bestu skákmenn landsins, 20 ára og yngri, þar á meðal.
Staða okkar manna eftir 5 umferðir.
6-12. Nökkvi Sverrisson 3 vinninga.
13-16. Daði Steinn Jónsson 2,5 vinninga
17-20. Kristófer Gautason 2 vinninga
21-23. Valur Marvin Pálsson 1,5 vinninga
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.