Thelma Lind Halldórsdóttir stúlknameistari.

  Fimmtán stúlkur mættu á fyrsta stúlknameistaramót Vestmannaeyja, sem haldið var í dag.  Tefldar voru 7 umferðir monrad með 10 mínútna umhugsunartíma sem síðar var styttur niður í 5 mínútur í lokaumferðunum.

  Thelma leiddi allt mótið, en mjóu munaði þó í síðustu umferðinni, þegar hún tapaði fyrir Örnu Þyrí meðan Indíana sigraði sinn andstæðing og náði Thelmu að vinningum.  Eftir stigaútreikning var þó ljóst að Thelma var ofar og hlaut hún því fyrsta sætið.

  Í yngri aldursflokk sigraði Hafdís Magnúsdóttir nokkuð örugglega með 5 vinninga og í hópi byrjenda sigraði Erika Ómarsdóttir með 3,5 vinninga.

  Annars urðu úrslit þessi:

Mótið í heild.

1. Thelma Lind Halldórsdóttir 5,5 vinningar (21.25)
2. Indíana Guðný Kristinsdóttir 5,5 vinningar (20,75)
3. Arna Þyrí Ólafsdóttir 5 vinningar (18,5)
4. Hafdís Magnúsdóttir 5 vinningar (18)

Yngri flokkur (framhald og fd. 1999 og 2000).

1. Hafdís Magnúsdóttir 5 vinningar
2. Eydís Ósk Þorgeirsdóttir 4 vinningar (15)
3. Auðbjörg H. Óskarsdóttir 4 vinningar ((12,5)
4. Eva Lind Ingadóttir 3,5 vinningar

Byrjendur fd. 2001.

1. Erika Ómarsdóttir 3,5 vinningar
2. Aníta Lind Hlynsdóttir 3 vinningar
3. Hulda Helgadóttir 2,5 vinningar (6,5)
4. Alexandra Ursula Koniefsska 2,5 vinningar (4)

Lokastaðan í mótinu

sætiNafnvinSB.
1Thelma Lind Halldorsdottir21,25
2Indiana Kristinsdottir20,75
3Arna Thyri Olafsdottir518,50
4Hafdis Magnusdottir518,00
5Eydis Osk Thorgeirsdottir415,00
6Audbjorg H Oskarsdottir412,50
7Eva Lind Ingadottir7,00
8Erika Omarsdottir7,00
9Sigridur M Sigthorsdottir310,50
10Agusta J Olafsdottir37,50
11Anita Lind Hlynsdottir36,75
12Asta Bjort Juliusdottir35,25
13Hulda Helgadottir6,50
14Alexandra U Koniefsska4,00
15Arna Dogg Kolbeinsdottir22,50


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband