Alþjóðlegi meistarinn Nils Grandelius (2491) hefur gengið til liðs við TV. Nils er aðeins 15 ára gamall og er þegar kominn með einn áfanga að stórmeistaratitli. Hann er almennt talinn vera eitt mesta skákmannsefni sem fram hefur komið í Svíþjóð. Hann hefur farið hratt upp stigalista FIDE undanfarið og hækkaði um rúmlega 100 Eló stig á s.l. ári. Hann tefldi m.a. á nýloknu Reykjavíkurskákmóti og fékk þar 6 vinninga sem lyftir honum yfir 2500 stiga múrinn. Þessa dagana tekur hann þátt í Scandinavian Open mótinu þar sem Henrik Danielsen og Björn Þorfinnsson eru meðal þátttakenda. Nils er þar með efstu mönnum með þrjá vinninga eftir fjórar umferðir eftir sigur á stórmeistaranum Stellan Brynell í fjórðu umferð. Nils mun styrkja lið TV verulega í baráttu efstu liða í fyrstu deild, en fyrir eru m.a. stórmeistarnir Helgi Ólafsson og Luis Galego.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.