11.4.2009 | 22:50
Nökkvi sigraði á Páskaeggjamót TV
Nökkvi Sverrisson varð efstur á Páskaeggjamót Taflfélags Vestmannaeyja, sem haldið var í dag. Keppendur voru 16 og tefldu 5 mínútna skákir, 7 umferðir. Nökkvi hlaut 6,5 vinninga úr sjö skákum, gerði aðeins jafntefli við Ólaf Frey. Næstur kom Daði Steinn með 6 vinninga.
Veitt voru verðlaun í 3 flokkum og fengu allir þáttakendur páskaegg.
Elsti flokkur (1994-1998)
- Nökkvi Sverrisson 6,5 vinninga
- Daði Steinn Jónsson 6 vinninga
- Ólafur Freyr Ólafsson 4,5 vinninga
- Þuríður Gísladóttir 3 vinninga
Miðjuflokkur (1999)
- Róbert Aron Eysteinsson 4,5 vinninga
- Sigurður Arnar Magnússon 4 vinninga
- Jörgen Freyr Ólafsson 4 vinninga
- Davíð Már Jóhannesson 4 vinninga
- Hafdís Magnúsdóttir 3 vinninga
- Óliver Magnússon 2 vinninga
- Berglind Sól Jóhannsdóttir 0 vinninga
Yngsti flokkur (2000-2002)
- Daníel Hreggviðsson 3 vinninga
- Eyþór Daði Kjartansson 3 vinninga
- Máni Sverrisson 3 vinninga
- Þráinn Sigurðsson 1 vinning
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.