4.4.2009 | 01:20
Vel heppnað fjöltefli Stuart Conquest - eitt jafntefli
Eins og áður hafði verið greint frá kom skákmeistari Bretlands, stórmeistarinn Stuart Conquest (2549), til Eyja í dag. Hann var með kennslu fyrir strákana yfir miðjan daginn þar sem hann fór yfir fallega vinningsskák sína frá nýliðnu Reykjavíkurskákmóti. Í kvöld tefldi hann svo fjöltefli sem því miður var ekki nógu vel sótt. Margir eru uppi á landi í fríi þessa dagana þannig að það var 10 manna hópur sem háði harða rimmu gegn stórmeistaranum.
Conquest, sem hefur mjög athyglisverðan skákstíl, vann allar skákirnar nema eina af nokkru öryggi, þrátt fyrir örfáar yfirsjónir - hann leyfði einungis eitt jafntefli, gegn Birni Ívari, í langri baráttuskák þar sem stórmeistarinn var með betri stöðu allt frá byrjun en varð fótaskortur í miðtaflinu og var Björn Ívar með vinningsstöðu á tímabili. Conquest var hins vegar vel á verði í vörninni og skákinni lyktaði með jafntefli eftir þráleik.
Conquest mun eyða helginni á skákeyjunni áður en hann heldur aftur til síns heima. Taflfélagsmenn þakka stórmeistaranum kærlega fyrir komuna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.