2.4.2009 | 18:32
Stuart C Conquest með fjöltefli á föstudagskvöld
Á morgun, föstudag teflir Englendingurinn Stuart Conquest fjöltefli í húsnæði T.V. við Heiðarveg og hefst taflmennskan kl. 20.
Stuart Conquest varð heimsmeistari 16 ára og yngri árið 1981 aðeins 14 ára að aldri.
Hann hefur tvisvar verið sigurvegari á Hastings-mótinu, 1995 og 2000 og á síðasta ári vann hann Breska meistaramótið.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta og reyna sig á móti einum sterkasta skákmanni Bretlandseyja.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.