31.3.2009 | 21:40
Stórmeistari til Eyja á föstudaginn.
Nú eru miklar líkur á að enski stórmeistarinn Stuart C. Conquest (2531) komi til Eyja á föstudaginn og verði með fjöltefli fyrir áhugasama á föstudagskvöldið og líka smá kennslu fyrir nemendur Taflfélags Vestmannaeyja. Allir eru hvattir til að mæta. Stuart keppir nú á Reykjavíkurmótinu og er fyrir síðustu umferðina í 18 sæti af 110 keppendum. Hann hefur mikinn áhuga á að koma hingað og og leggja sitt af mörkum til að efla skáklífið. Nánari tímasetningar auglýstar síðar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.