29.3.2009 | 14:35
Helgi Ólafsson með fyrirlestur.
Í dag klukkan 15 verður stórmeistarinn Helgi Ólafsson félagsmaður í Taflfélagi Vestmannaeyja með fyrirlestur á Kjarvalsstöðum um sögu og uppruna skáklistarinnar í tengslum við sýninguna Skáklist" á Kjarvalsstöðum. Helgi mun fara vítt og breytt í fyrirlestri sínum og meðal annars ræða um arabíska skák frá því um 1000, ræða söguna Manntafl eftir Stefan Sweig, sem sett var á svið Borgarleikhússins fyrir nokkru og einnig beina sjónum að skák í verkum Halldórs Laxness.
Þeir félagsmenn í TV sem staddir eru uppi á landi ættu að skella sér á þennan fróðlega fyrirlestur ef þess er nokkur kostur og hlusta á fróðlegan fyrirlestur Helga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.