Sjö keppendur frá TV á Reykjavík Open.

  Nú stendur yfir Reykjavík Open skákmótið í Reykjavík og eru 110 keppendur á mótinu, þar af mikill fjöldi erlendra skákmanna.

  Það er gaman að fylgjast með gengi okkar keppenda á mótinu, því hvorki fleiri né færri en sjö keppendur taka þátt úr Taflfélagi Vestmannaeyja.  þetta eru þeir Luis Galego, Þorsteinn Þorsteinsson, Sævar Bjarnason, Einar K. Einarsson, Kjartan Guðmundsson, Sverrir Unnarsson og Nökkvi Sverrisson.

  Gengi þeirra er misjafnt, en Galego er með efstu mönnum, þrátt fyrir að vera ekki í hópi stigahæstu manna.  Annars er gengi þeirra eftir þrjár umferðir eftirfarandi:

  9. Luis Galego (2494) 2,5 vinn.
22. Þorsteinn Þorsteinsson (2288) 2 vinn.
71. Sævar Bjarnason (2211) 1 vinn.
80. Einar K. Einarsson (2065) 1 vinn.
80. Kjartan Guðmundsson (2009) 1 vinn.
99. Nökkvi Sverrisson (1675) 1/2 vinn.
00. Sverrir Unnarsson (1860) 0 vinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband