19.3.2009 | 13:40
Á morgun - Akureyri.
Jæja, þá er það bara Akureyri á morgun og lokaundirbúningur í fullum gangi. Hér að neðan eru lið TV. Skipulag ferðarinnar er þannig að farið er með Herjólfi kl. 8 á föstudagsmorgni og farið með rútu norður í beinu framhaldi og komið við í höfuðborginni ca. kl 13 til að taka upp þá sem fara frá höfuðborginni. Fyrsta umferð hefst kl. 20 á föstudagskvöldinu (og kl. 11 og 17 á laugardegi) og er teflt í Brekkuskóla á Akureyri. Gist verður í sumarbústöðum með heitum pottum í Fögruvík rétt norðan við Akureyri (r+b) Það sem þarf að hafa með sér eru sængurver, nema menn leigi þau á 900 kr. eða hafi með sér svefnpoka. Þá þurfa menn að hafa með sér aura fyrir máltíðum og slíku.
Við höfum náð verðum mikið niður og er verð fyrir félagsmenn kr. 7000 fyrir fullorðna og 5000 fyrir börn fyrir rútu+bústað. Allar upplýsingar er unnt að fá hjá formanni Gauta s. 898 1067.
A- sveitin, 6 manns ........ koma, r+b=3, s+A=3
B- sveitin, Ægir Páll, Sigurjón, Kjartan, Sverrir, Þórarinn og Gauti, r4, b5, s2, A1
C- sveitin, Andri Hr., Ólafur Týr, Nökkvi, Stefán, Daði Steinn og Kristófer, r+b=5, s+A=1.
D- sveitin, Ólafur Freyr, Valur og Daníel, 3 auð borð, r+b=2, s+A=1.
21 öruggir, 14 í rútu og 15 í bústað og 6 á eigin vegum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.