11.3.2009 | 23:42
Skólaskákmót Vestmannaeyja
Í dag, miðvikudag fór fram Skólaskákmót Vestmannaeyja fyrir árið 2009. Góð þátttaka var í yngri flokki (1-7 bekkur), þar sem 23 mættu til leiks. Tefldar voru 9 umferðir.
Hörð barátta var um tvö efstu sætin sem gefa rétt til þátttöku á Kjördæmismóti Suðurlands sem haldið verður í byrjun apríl.
Kristófer Gautason og Daði Steinn Jónsson tóku snemma afgerandi forystu og leiddu mótið lengst af eftir að hafa gert innbirðis jafntefli, en eftir að Ólafur Freyr gerði jafntefli við Daða Stein var ljóst að Kristófer var orðinn einn efstur og sigraði með hálfum vinningi.
Efst stúlkna varð Thelma Lind Halldórsdóttir.
Í eldri flokki (8-10 bekkur) var einungis einn keppandi, Nökkvi Sverrisson og er hann þar með fulltrúi Grunnskóla Vestmannaeyja á Kjördæmismóti Suðurlands.
Staðan í yngri flokki
sæti | Nafn | vinn |
1 | Kristófer Gautason | 8½ |
2 | Daði Steinn Jónsson | 8 |
3 | Ólafur Freyr Ólafsson | 6½ |
4 | Lárus Garðar Long | 6 |
5 | Sigurður Arnar Magnússon | 6 |
6 | Davíð Már Jóhannesson | 5½ |
7 | Róbert Aron Eysteinsson | 5 |
8 | Eyþór Daði Kjartansson | 5 |
9 | Jörgen Freyr Ólafsson | 5 |
10 | Jóhann Helgi Gíslason | 5 |
11 | Ágúst Már Þórðason | 4½ |
12 | Thelma Lind Halldórsdóttir | 4½ |
13 | Guðlaugur Guðmundsson | 4 |
14 | Daníel Hreggviðsson | 4 |
Þórður Sigursveinsson | 4 | |
16 | Hafdís Magnúsdóttir | 4 |
17 | Eydís Þorgeirsdóttir | 3½ |
18 | Sigríður Margrét Sigþórsdóttir | 3½ |
19 | Arna Þyrí Ólafsdóttir | 3½ |
20 | Daníel Scheving | 3 |
21 | Þráinn Sigurðsson | 3 |
22 | Sigurjón Þorgeirsson | 3 |
23 | Auðbjörg Sigþórsdóttir | 2 |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.