5.3.2009 | 21:58
Eyjar - Ísland 7 - 5 í netskákinni.
Í kvöld fór fram netskákkeppni milli Taflfélags Vestmannaeyja og stúlknalandsliđs yngri en 20 ára og voru tefldar 2x6 skákir á sex borđum.
Fóru leikar ţannig ađ Eyjar sigruđu 7 - 5.
Úrslit:
1 borđ Björn Ívar - Hallgerđur 1,5 - 0,5
2 borđ Sigurjón - Elsa María 0 - 2
3 borđ Sverrir U - Geirţrúđur 1,5 - 0,5
4 borđ Ólafur Týr - Tinna Kr. 1,5 - 0,5
5 borđ Stefán G. - Sigríđur B 1 - 1
6 borđ Dađi/Kristó - Hrund H 1,5 - 0,5
Samtals ............. 7 - 5
Nýbakađur Vestmannaeyjameistari Björn Ívar Karlsson sigrađi Íslandsmeistara kvenna Hallgerđi Helgu Ţorsteinsdóttur örugglega á 1. borđi, 1 ˝ : ˝. Björn Ívar vann fyrri skákina nokkuđ fyrirhafnarlítiđ en í seinni skákinni lenti hann 2 peđum undir en varđist stórkostlega og náđi ađ landa jafntefli.
Á 2. borđi sigrađi Elsa María Kristínardóttir Sigurjón Ţorkelsson 2:0, en Sigurjón lék fyrri skákinni niđur í tap međ slćmum afleik í jafnteflisstöđu.
Á 3. borđi vann Sverrir Unnarsson Geirţrúđi Önnu Guđmundsdóttur 1 ˝ : ˝ međ öruggri og ţéttri taflmennsku.
Á 4. borđi sigrađi Ólafur Týr Guđjónsson Tinnu Kristínu Finnbogadóttur 1 ˝ : ˝. Ólafur lenti í slćmri stöđu í fyrri skákinni en međ góđri vörn náđi hann ađ jafna tafliđ og sigrađi ađ lokum eftir slćman afleik Tinnu. Seinni skákinni lauk međ jafntefli eftir harđa baráttu.
Á 5. borđi skildu ţau jöfn Stefán Gíslason og Sigríđur Björg Helgadóttir 1:1. Stefán lćtur sér fátt koma á óvart og međ ţví ađ vinna vel úr stöđuyfirburđum sínum í fyrri skákinni sigrađi hann af miklu öryggi. Seinni skákinni tapađi Stefán án mikilla vandrćđa.
Á 6. borđi gerđi Hrund Hauksdóttir og Dađi Steinn Jónsson jafntefli í fyrri skákinni en seinni skákina tefldi Kristófer Gautason og vann sannfćrandi sigur međ svörtu.
Stúlkurnar voru nokkuđ sleipar og ágćtlega ađ sér í byrjunum, en mikil reynsla og góđ barátta Eyjamanna reyndist ţyngri á metunum.
Forföll voru hjá báđum liđum. Nökkvi Sverrisson gat ekki teflt vegna veikinda og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir var í skíđaferđalagi á Akureyri
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.