Netskák á fimmtudaginn.

  Nú er það fastákveðið að setja upp netskákkeppni milli Taflfélags Vestmannaeyja og unglingalandsliðs stúlkna 20 ára og yngri, fimmtudaginn 5. mars n.k. kl. 19:30.  Teflt verður á 6 borðum á netinu með umhugsunartímann 15 mín +10 sek. á leik, tvær umferðir.  Keppendur frá TV verða staðsettir í tölvusal framhaldsskólans í Vestmannaeyjum.

  Keppendur í stúlknaliðinu verða Hallgerður, Geirþrúður, Elsa María, Tinna Kristín, Sigríður Björg og Hrund.
  Reikna má með að keppendur fyrir TV verði sex af eftirtöldum : Björn Ívar, Ægir Páll, Sverrir, Sigurjón, Nökkvi, Ólafur Týr, Þórarinn og hugsanlega Kristófer á 6 borði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband