23.2.2009 | 00:32
Vormót TV - 28 keppendur.
Í gær, sunnudagskvöld hófst Vormót Taflfélags Vestmannaeyja. Í þessari fyrstu umferð bar það helst til tíðinda að frambjóðandi Framsóknarflokksins heimsótti félagið og væri það ákveðin nýbreytni ef fleiri frambjóðendur kæmu og fylgdust með hinu öfluga starfi sem fram fer í félaginu.
Mót þetta er nýjung í félaginu og sett af stað til að mæta kröfum um að félagsmenn eigi kost á að tefla fleiri kappskákir yfir veturinn. Ekki er unnt að segja annað en vel hafi tekist til því 28 keppendur eru skráðir til leiks og aðeins einni skák var frestað í fyrstu umferð en hún verður tefld þriðjudag kl. 19:30. Það eru ár og dagar síðan jafnfjölmennt mót með kappskáktímamörkum hefur verið haldið í Eyjum. Keppendur eru gott samsafn af eldri og yngri félögum og reyndum og óreyndum, þannig eru 11 fullorðnir, en alls 14 með Íslensk kappskákstig. Guðlaugur og Daníel Már eru að keppa á sínu fyrsta kappskákmóti og Nökkvi Dan og Haukur eru að byrja að tefla á ný eftir langt hlé. Engin óvænt úrslit urðu í umferðinni en oft var hart barist.
Úrslit 1. umferðar :
Bo. | Name | Pts | Res. | Pts | Name |
1 | Bjorn Ivar Karlsson | 0 | 1 - 0 | 0 | Daniel Mar Sigmarsson |
2 | Aegir Pall Fridbertsson | 0 | - | 0 | Gudlaugur G Gudmundsson |
3 | David Mar Johannesson | 0 | 0 - 1 | 0 | Sigurjon Thorkelsson |
4 | Sverrir Unnarsson | 0 | 1 - 0 | 0 | Eythor Dadi Kjartansson |
5 | Haukur Solvason | 0 | 0 - 1 | 0 | Einar Gudlaugsson |
6 | Nokkvi Sverrisson | 0 | 1 - 0 | 0 | Johann Helgi Gislason |
7 | Johannes Sigurdsson | 0 | 0 - 1 | 0 | Olafur Tyr Gudjonsson |
8 | Stefan Gislason | 0 | 1 - 0 | 0 | Jorgen Olafsson |
9 | Larus Gardar Long | 0 | 0 - 1 | 0 | Thorarinn I Olafsson |
10 | Karl Gauti Hjaltason | 0 | 1 - 0 | 0 | Nokkvi Dan Ellidason |
11 | Robert Aron Eysteinsson | 0 | 0 - 1 | 0 | Kristofer Gautason |
12 | Dadi Steinn Jonsson | 0 | 1 - 0 | 0 | Sigurdur Arnar Magnusson |
13 | Tomas Aron Kjartansson | 0 | 0 - 1 | 0 | Olafur Freyr Olafsson |
14 | Agust Mar Thordarson | 0 | 0 - 1 | 0 | Valur Marvin Palsson |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.