11.2.2009 | 08:56
Nökkvi á leið til Færeyja á NM.
Nú í morgun flaug Nökkvi ásamt fleiri keppendum frá Keflavík til Kaupmannahafnar og síðan til Þórshafnar í Færeyjum, en næstu daga fer þar fram Norðurlandamót ungmenna í skák.
Keppt er í 5 flokkum, A (90+91), B (92+93), C (94+95), D (96+97) og E flokki (98 og yngri) og eru tveir keppendur frá hverju landi í hverjum flokki og keppir Nökkvi í C flokki.
Undanfarin ár hafa Vestmannaeyingar átt keppendur á þessu móti, í fyrra keppti Kristófer í E flokki og árið þar áður kepptu þeir félagar báðir fyrir Íslands hönd, Kristófer í E flokki og Nökkvi í D flokki. Ætlunin er að fylgjast með gengi hans hér á þessari síðu eins og kostur er.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.