Eru í fjórða sæti fyrir lokaumferðina.

  Nú er átta umferðum lokið á íslandsmótinu og gengi okkar hefur verið með milkum ólíkindum í dag.

  A-sveitin keppti við sterkustu sveitina, Salaskóla A í sjöundu umferð og tapaði 1-3, þar sem Arna sigraði andstæðing sinn og hún hefur nú 7 vinninga úr 7 skákum, hreint frábært hjá stelpunni !  Í áttundu umferð unnu þær Hjallaskóla B 3-1.  Arna var óheppin, var með unnið tafl en pattaði andstæðing sinn en hefur samt 7,5 vinning af 8.  A-sveitin er nú með 24 vinninga af 32 mögulegum.

  B-sveitin keppti við Salaskóla B í sjöundu umferð og töpuðu 1,5 - 2,5 og í áttundu umferð kepptu þær við Rimaskóla A og töpuðu 0-4, og hafa nú 7 vinninga.

  Í síðustu umferðinni mætir A-sveitin Rimaskóla A og verða að vinna stórt ef þeim á að takast að ná 3ja sætinu.  Staðan á mótinu er þannig :

  1. Salaskóli A 29 vinningar
  2. Hjallaskóli A 28,5 vinningar
  3. Rimaskóli A 26 vinningar
  4. Vestmannaeyjar A 24 vinningar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband