7.2.2009 | 16:27
Spennan vex enn á stúlknamótinu.
Þá er 6 umferðum lokið á Íslandsmótinu og Eyjapæjur hafa aldeilis komið á óvart með hreint frábærri frammistöðu á mótinu.
A-sveitin (þær Thelma, Indíana, Arna og Hafdís) kepptu í fimmtu umferð á móti Hólabrekkuskóla A og unnu 3-1, í sjöttu umferð unnu þær Salaskóla C 4-0 og hafa því 20 vinninga af 24 mögulegum og eru að standa sig framar björtustu vonum.
B-sveitin (þær Sigga, Eydís, Auðbjörg og (Auður sem er autt sæti)) Í fimmtu umferð lentu þær á móti Hjallaskóla A og töpuðu 0-4 en í sjöttu umferð mættu þær Hjallaskóla B og fengu 2 vinninga og eru nú með 5,5 vinninga.
Staðan er nú sú að Salaskóli A er efstur með 22 vinninga, síðan er Hjallaskóli A með 21 vinninga, við erum í 3 sæti með 20 vinninga og Rimaskóli A sem er í 4 sæti með 18 vinninga. Staðan er lítið marktæk ennþá, þar sem ekki er keppt eftir monrad kerfi heldur keppa allar sveitir innbyrðis.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.