Stelpurnar að standa sig frábærlega !

  Nú er þremur umferðum lokið á Íslandsmóti Grunnskólasveita og eru okkar stelpur að standa sig frábærlega vel.

  A - Sveitin er með 9 vinninga af 12 og er því í efri hluta mótsins, fyrst unnu þær B - Sveitina 4-0, síðan kepptu þær við Rimaskóla B og sigruðu 4 - 0 og í þriðju umferð kepptu þær við Hjallaskóla A og töpuðu 1-3, þegar Arna náði okkar eina vinningi á 3 borði.

  B - Sveitin sem þarf alltaf að gefa á einu borði, tapaði 0 - 4 á móti okkar A - sveit í fyrstu umferð lenti á móti Salaskóla C í annarri umferð og tapaði 1,5 - 2,5 síðan náðu þær tveimur vinningum á móti Rimaskóla B og hafa því 3,5 vinninga eftir 3 umferðir.

  Sannarlega góður árangur hjá okkar stelpum á þeirra fyrsta stúlknamóti !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband