4.2.2009 | 19:21
Ferð á Íslm. Grunnskólasveita stúlkna á laugardag.
Í dag var fundur með foreldrum stúlkna sem hyggjast fara á íslandsmót Grunnskólasveita stúlkna sem fram fer í Salaskóla n.k. laugardag 7. febrúar. Áætlað er að fara með Herjólfi báðar leiðir á morgni laugardags upp á land og til baka seinni ferð. Fararstjóri er Björn Ívar Karlsson s. 692 1655. Um upplýsingar vísast til hans og Gauta 898 1067.
Útlit er fyrir að við sendum eina sveit og e.t.v. meira, en það skýrist á næstu dögum.
Þær sem gætu skipað eru í sveitirnar :
Thelma (96), Indíana (96), Arna (97), Hafdís (99), Sigga (99), Auðbjörg (01) og Eydís (01).
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.