Páll Leó efstur en þrír í humáttinni.

  Þegar ein umferð er eftir á Suðurlandsmótinu í skák er Páll Leó Jónsson SSON efstur með 5 vinningar, en skammt undan eru þeir Björn Ívar Karlsson TV, Nökkvi Sverrisson TV og Magnús Gunnarsson SSON með 4,5 vinning.

  Í síðustu umferðinni teflir Páll við Sverrir Unnarsson og því þung byrði sett á herðar þessum góða dreng, sem núna er í Ji Gong tímum hjá Gunnari Eyjólfssyni og iðkar íhugun.

  Sama sagan var uppi á teningunum í dag og þegar mótið hófst að áhorfendur streymdu að til að fylgjast með meistaratöktum.  Um tíma þurfti skákstjóri sem var Magnús Matthíasson að hleypa áhorfendum inn í hollum og tókst það vel, enda vanur maður á ferð þar sem Magnús er og eins og einn sagði að þar var hann er betri en engin.  Tók hann upp það snjallræði að strengja kaðla utan um keppnissvæðið og keppendur höfðu þá örlítið meira næði til taflmennskiu, en hins vegar má glöggt sjá að þetta truflaði taflmennsku skákstjórans sjálfs.

mótið á chess-result


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband