30.1.2009 | 23:57
Björn Ívar og Páll Leó efstir með 3 vinninga.
Í kvöld voru tefldar fyrstu 3 skákirnar á Suðurlandsmótinu á Selfossi.
Eftir þessar þrjár umferðir eru tveir með fullt hús, Björn Ívar Karlsson TV og Páll leó Jónsson SSON. Í fyrramálið verður síðasta atskákin þ.e.a.s. 4 umferð og mætast þeir Björn og Páll þar og hefur Björn hvítt.
Góður rómur var gerður á mótinu og fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína til að fylgjast með í ágætri aðstöðu í Gesthúsum á Selfossi. Magnús Matthíasson setti mótið kl. 20:00 og urðu keppendur alls 24, þar af 11 frá Taflfélaginu í Vestmannaeyjum.
Ólafur Freyr stóð sig afar vel og hefur 2 vinninga af 3 og er í 5 sæti á mótinu ásamt nokkrum öðrum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.