16.1.2009 | 12:26
Ný könnun.
Nú er komin ný könnun á síðuna um hver muni sigra hið geysifjölmenna Skákþing Eyjanna í ár. Lesendur eru hvattir til að spá fyrir um úrslitin.
Síðasta könnun gekk út á að kanna hversu gamalt jólamót TV væri og voru flestir á því að upphaf Jólamótsins megi rekja til þræla Hjörleifs. Þeir komu hingað til Eyja eftir drápið á húsbóndanum árið 859 og halda menn sem sagt að þeir hafi stytt sér stundir við taflmennsku á milli þess sem þeir gæddu sér á Geirfuglssteikum, en Geirfuglar hafa á þeim tíma spókað sig um alla Eyju og verið auðveld bráð. Er því ekki ólíklegt að þeir hafi haft nægan frítíma og því sest við Tafliðkun.
Næsta jólamót verður því nr. 1150 í röðinni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.