Næsta umferð og reglur

  Næsta umferð Skákþingsins verður á fimmtudag kl. 19.30.

  Um leið og minnt er á þetta eru hér reglur TV um frestanir kappskáka.

Reglur TV um frestanir kappskáka

Skákum skal ekki frestað nema lögmæt forföll séu til staðar.
Forföll geta verið vegna vinnu, veikinda, ferðalaga vegna vinnu eða fjölskyldu o.þ.h.
Mótsstjóri sker úr um í vafatilfellum hver séu lögmæt forföll.
Keppandi, sem vegna forfalla getur ekki mætt til keppni, skal tilkynna mótsstjóra og andstæðingi sínum um frestun skákar með a.m.k. 6 klukkustunda fyrirvara og fyrr ef hann getur.
Keppendur skulu koma sér saman um hvenær skákin skuli tefld, en það skal gera a.m.k. einum sólarhring fyrir næstu umferð mótsins.
Komi þeir sér ekki saman um tíma, ákveður mótsstjóri tímasetningu e
ftir að hafa rætt við báða keppendur.
Skák er töpuð mætir keppandi ekki til skákar, klukkustund eftir að timi er settur af stað.
Ef keppandi mætir ekki ítrekað án skýringa fellir mótsstjóri hann úr mótinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband