4.1.2009 | 16:45
Róbert og Sigurður efstir á fyrsta sunnudagsmóti vorannar.
Þá er mótaröð vorannar hafinn. Í dag mættu fjórtán krakkar, þar af þrjár stúlkur. Tefldar voru 6 umferðir 5 mínútna hraðskákir. Mamma Jörgens kom færandi hendi og gaf krökkunum ljúffengar nýjárspönnukökur og mæltist það afar vel fyrir. Nú er að fara af stað undirbúningur undir ferð á Íslandsmót barna næstu helgi og því mikilvægt að þeir sem ætla með mæti í vikunni og fylgist með ferðaáætluninni. Enn helstu úrslit á mótinu nú urðu :
1.-2. Róbert og Sigurður 5 vinn. 48 stig.
3. Jörgen 4,5 vinn. 42 stig.
4. Eyþór 4 vinn. 38 stig.
5. Daníel Már 3,5 vinn. 34 stig.
6-10. Lárus, Ágúst, Davíð. Jóhann Helgi, og Indiana 3 vinn 26 stig.
11. Thelma 2,5 vinn. 20 stig.
12. Daníel Helgi 1,5 vinn. 18 stig.
13. Máni 1 vinn. 16 stig.
14. Hafdís 0 vinn. 14. stig.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.