Björn Ívar og Ólafur Freyr Tvískákmeistarar 2008.

  Í gærkvöldi fór fram Tvískákmeistaramót Vestmannaeyja 2008.

Spennandi keppni.
  Sex lið mættu til leiks og snerist keppnin fljótlega upp í einvígi milli tveggja liða, annars vegar Björns Ívars Karlssonar/Ólafs Freys Ólafssonar og Daða Steins Jónssonar/Kristófers Gautasonar og eftir að mótinu lauk kom í ljós að bæði þessi lið stóðu uppi með 9 vinninga af 10 mögulegum.

Tvöfaldur bráðabani.
  Þá var tefldur bráðabani tvær skákir milli þessara liða og enn var jafnt 1-1 og var þá brugðið á það ráð að tefla eina skák milli liðanna og dregið um mótherja og lit.  Fóru þá leikar þannig að Björn Ívar og Ólafur Freyr sigruðu og urðu þar með Tvískákmeistarar Vestmannaeyja 2008.

Úrslit.
1.   Björn Ívar Karlsson / Ólafur Freyr Ólafsson 9 vinn + 1 + 1
2.   Kristófer Gautason / Daði Steinn Jónsson 9 vinn +1 + 0
3-4. Nökkvi Sverrisson / Jóhann Helgi Gíslason 5 vinn.
3-4. Sverrir Unnarsson / Jörgen Freyr Ólafsson 5 vinn.
5-6. Ágúst Már Þórðarson / Haukur 1 vinn + 1
6.   Sigurður A. Magnússon / Patrekur 1 vinn + 0


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband