Næstu mót upp á landi.

  Nú er fjöldi móta á dagskrá uppi á landi næsta mánuðinn og er vert að benda Eyjamönnum á þau, ef þeir gætu mætt á þau.

  Fyrst er að nefna að næsta laugardag 20 des. fer fram í Ráðhúsinu kl. 13 Jólapakkamótið em er fyrir krakka og unglinga og er þetta mjög fjölmennt mót með veglegum vinningum og happadrætti.  Mótið er ekki mjög langt og því tilvalið að taka þátt í því ef þið eruð uppi á landi.  Sjá nánar á síðunni skak.is.

  Síðan er á sunnudag og mánudag 21 og 22. des. Unglingameistaramótið í Reykjavík 20 ára og yngri og þeir sem geta ættu að mæta á það til þess að ná sér í reynslu.  Um þetta mót má lesa á skak.is líka.

  Laugardaginn 10. janúar munum við fara hópferð til Reykjavíkur með alla krakka fædda 1998 og yngri á Íslandsmót barna.  Reiknað er með að fara fram og til baka á sama degi.  Mikilvægt er að hafa þessa ferð í huga og mæta vel á æfingar um jól og áramót.  Tveir efstu krakkarnir á mótinu fara sjálfkrafa á Norðurlandamótið í Færeyjum í febrúar.

  Síðustu helgina í janúar (30. jan, 31 og 1 febr.) er Suðurlandsmótið í skák og er ætlunin að fara með hóp héðan úr Eyjum á mótið.  Mótið tekur alla helgina og saman stendur af atskákum og kappskákum og því tilvalið til að ná sér í reynslu.  Sjá nánar um þetta mót á sudurskak.blog.is sem er í tengli hér á okkar síðu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband