18.10.2008 | 17:47
Nökkvi Íslandsmeistari drengja !
Taflfélag Vestmannaeyja bætti enn einni rós í hnappagatið í dag þegar Vestmannaeyjingar eignuðust einn Íslandsmeistarann enn í skák þegar Nökkvi Sverrisson (1994) vann Íslandsmeistaratitil drengja á Skákþingi Íslands yngri en 15 ára, sem haldið var í Vestmannaeyjum.
Nökkvi varð Íslandsmeistari barna árið 2005 (10 ára og yngri) og varð í fyrra (2007) Íslandsmeistari með sveit barnaskóla Vestmannaeyja.
Safn Íslandsmeistaratitla til Eyja í skák er orðið stærra og fjölbreyttara með þessum nýjasta titli Nökkva og við óskum honum innilega til hamingju með þennan titil.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.