28.5.2018 | 11:29
Sigurjón skákmeistari Vestmannaeyja 2018
Skákþing Vestmannaeyja 2018 hófst 17. janúar sl. og voru tefldar sjö umferðir ( einföld umferð) í skáksetri TV við Heiðarveg. Sigurjón Þorkelsson, margreyndur Vestmannaeyjameistari vann mótið og hlaut 6 ½ vinninga. Í öðru sæti varð Einar B. Guðlaugsson með 5 ½ vinninga og í 3.-4. sæti Þórarinn Ingi Ólafsson og Arnar Sigurmundsson með 5 vinninga. Í fimmta sæti varð Páll Árnason fyrrum múrari með 3 vinninga. Mótið tókst vel og voru teflar 1-2 umferðir á viku.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.