26.12.2013 | 19:36
Nökkvi Jólaskákmótsmeistari 2013.
À Jóladag fór að venju fram hið árlega Jóladagsmót Taflfélags Vestmannaeyja. Eins og öllum er kunnugt er þetta eina skákmótið á landinu þennan dag og menn leggja ýmislegt á sig til að mæta á það.
Vegna slæms veðurs þetta árið komu færri ofan af landi en oft áður og vegna óvenju saltaðs hangikjöts voru nokkrir af ástsælustu skákmönnum Eyjanna heima í hefðbundnu vatnsbaði.
En til að gera langa sögu stutta þá mættu sex til keppninnar að þessu sinni og vakti mesta athygli að Jólamótsmeistarinn 2012, Einar Jaxl Sigurðsson var því miður fjarverandi að þessu sinni, en sendi góðar kveðjur.
Úrslitin urðu þau að Nökkvi Sverrisson sigraði með 7,5 vinninga, annar varð Sigurjón Þorkelsson með 6,5 vinn., en þriðji varð Kristófer Gautason með 6 vinninga.
Röð | Keppendur | NS | SÞ | KG | SU | SG | KGH | Vinn |
1 | Nökkvi Sverrisson | X | 1,5 | 1 | 2 | 1 | 2 | 7,5 |
2 | Sigurjón Þorkelsson | 0,5 | X | 2 | 1 | 1 | 2 | 6,5 |
3 | Kristófer Gautason | 1 | 0 | X | 1 | 2 | 2 | 6 |
4 | Sverrir Unnarsson | 0 | 1 | 1 | X | 1 | 2 | 5 |
5 | Stefán Gíslason | 1 | 1 | 0 | 1 | X | 1 | 4 |
6 | Karl Gauti Hjaltason | 0 | 0 | 0 | 0 | 1 | X | 1 |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.