20.1.2013 | 21:42
Fjöltefli á miðvikudag kl. 13:00 í Akóges
Í tilefni af 40 ára afmæli gossins á Heimaey, stendur Taflfélagið ásamt, grunnskólanum og Vestmannaeyjabæ fyrir fjöltefli í Akóges n.k. miðvikudag 23 janúar og hefst fjölteflið kl. 13:00.
Sá sem mun etja þar kappi við gesti og gangandi er stórmeistarinn og fyrrum Eyjamaðurinn Helgi Ólafsson.
Allir eru velkomnir á fjölteflið meðan húsrúm leyfir og munu félagar í Taflfélaginu sjá um framkvæmd fjölteflisins, en Helgi hefur um langt árabil verið félagsmaður í Taflfélaginu hér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.