Skákþing 7. umferð - Nökkvi stöðvaði sigurgöngu Björns Ívars

 7. umferð Skákþingsins fór fram í kvöld.

Björn Ívar hafði hvítt á Nökkva og tefldi óvenjulega byrjun sem kennd hefur verið við Larsen. Hvítur fékk betra tafl út úr byrjuninni og svartur þurfti að þola örlitlar þrengingar. Nökkvi leysti vandamál sín mjög vel og jafnaði taflið í miðtaflinu. Eftir það skiptist út í endatafl þar sem staðan var hnífjöfn. Björn reyndi að tefla áfram til vinnings en Nökkvi tefldi stöðuna eins og herforingi og hvítur komst ekkert áfram. Jafntefli. Fín taflmennska hjá Nökkva.

Sverrir hafði hvítt á Daða Steinn og tefldi kóngsbragð - ekki í fyrsta skipti! Daði Steinn tefldi byrjunina nokkuð vel og þurfti Sverrir að eyða töluverðum tíma til þess að finna bestu leiðina. Hann gerði það hins vegar, fékk betri stöðu og vann mann og skákina í framhaldinu af öryggi.

 Þórarinn Ingi hafði hvítt á Sigurjón sem tefldi sjaldgæft afbrigði í Sikileyjarvörn. Svartur náði að laska peðastöðu hvíts með hagstæðum uppskiptum en Þórarinn leysti vandamálin nokkuð vel og setti pressu á drottningarvænginn. Keppendur sömdu svo um jafntefli í nokkuð jafnri stöðu.

Gauti hafði hvítt á Einar sem tefldi nokkuð lokað afbrigði franskrar varnar. Gauti þurfti að þola töluverðar þrengingar og tók báða keppendur tíma að koma mönnum sínum á framfæri. Gauti braust svo loks í gegn og vann peð eftir leppun. Hann hefði svo getað unnið annað peð, í stöðu sem var talsvert betri á hvítt, en kaus að hörfa sem hleypti Einari aftur inn í skákina. Einar vann svo lið í framhaldinu á skemmtilegan hátt og skákina í kjölfarið.

Róbert hafði hvítt á Stefán sem tefldi skandinavíska leikinn. Stefán vann peð í byrjuninni og í framhaldinu annað en hleypti Róberti óþarflega mikið inn í skákina sem náði að mynda sér frípeð á drottningarvængnum. Róbert tefldi vel í framhaldinu og eyddi Stefán talsverðum tíma í að reyna finna bestu leiðina. Hvítur kaus svo að fórna manni til þess að fækka peðum svarts á borðinu og gafst svo kostur á því að vinna síðasta peð svarts sem hefði leitt til stöðu þar sem svartur hefði tvo riddara gegn einum riddara hvíts. Keppendur sömdu því um jafntefli. Fín úrslit hjá Róberti.

Kristófer hafði hvítt á Jörgen og tefldu þeir ítalska leikinn. Kristófer beitti afbrigði sem hann þekkir vel en Jörgen tefldi prýðilega og nýtti tímann sinn vel. Staðan varð jöfn í miðtaflinu en með seiglu tókst Kristófer að setja pressu á Jörgen sem sást þá yfir að hvítur gæti unnið drottningu hans og gafst upp í kjölfarið.

Sigurður hafði hvítt á Tómas og tefldu þeir nokkuð óvenjulega drottningarpeðsbyrjun. Sigurður vann snemma lið og þrátt fyrir sóknartilraunir svarts varðist hvítur vel og sigldi sigrinum örugglega í höfn.

Hafdís hafði hvítt á Eyþór sem tefldi Petroffs-vörn. Snemma urðu miklar flækjur í skákinni og stóðu menn í dauðanum hægri vinstri. Eyþór kaus þá að fórna báðum hrókunum á mjög skemmtilegan hátt fyrir mátsókn, sem hefði gengið upp ef ekki hefði verið fyrir útsjónarsemi Hafdísar sem tók bara annan hrókinn. Sókn svarts var hins vegar mjög hættuleg og leiddi hún til vinnings skömmu síðar.

Um helgina fer fram Suðurlandsmótið í skák á Selfossi og þar sem nokkrir keppendur Skákþingsins taka þátt fer næsta umferð ekki fram fyrr enn eftir viku, n.k. miðvikudag kl. 19:30.

úrslit 7. umferðar

Bo.NafnÚrslitNafn
1Bjorn-Ivar Karlsson½  -  ½Nokkvi Sverrisson
2Sverrir Unnarsson1  -  0Dadi Steinn Jonsson
3Thorarinn I Olafsson½  -  ½Sigurjon Thorkelsson
4Karl Gauti Hjaltason0  -  1Einar Gudlaugsson
5Robert Aron Eysteinsson½  -  ½Stefan Gislason
6Kristofer Gautason1  -  0Jorgen Freyr Olafsson
7Sigurdur A Magnusson1  -  0Tomas Aron Kjartansson
8Hafdis Magnusdottir0  -  1Eythor Dadi Kjartansson


staðan eftir 7. umferð

SætiNafnStigViBH.
1Bjorn-Ivar Karlsson221129½
2Sverrir Unnarsson192629
3Sigurjon Thorkelsson203931
4Nokkvi Sverrisson178727½
5Einar Gudlaugsson1937429
6Thorarinn I Olafsson1697427
7Stefan Gislason168529½
8Dadi Steinn Jonsson159026½
9Robert Aron Eysteinsson135523
10Sigurdur A Magnusson137520½
11Kristofer Gautason167920½
12Karl Gauti Hjaltason1545323
13Jorgen Freyr Olafsson1140220
14Eythor Dadi Kjartansson1265219
15Hafdis Magnusdottir0217½
16Tomas Aron Kjartansson1010½20½


pörun 8. umferðar (miðvikudaginn 9. febrúar kl. 19:30)

 

Bo.NafnViÚrslitViNafn
1Sigurdur A Magnusson Bjorn-Ivar Karlsson
2Nokkvi Sverrisson Sverrir Unnarsson
3Sigurjon Thorkelsson Kristofer Gautason
4Einar Gudlaugsson4 4Thorarinn I Olafsson
5Eythor Dadi Kjartansson2 Stefan Gislason
6Dadi Steinn Jonsson 2Hafdis Magnusdottir
7Tomas Aron Kjartansson½ Robert Aron Eysteinsson
8Jorgen Freyr Olafsson2 3Karl Gauti Hjaltason

chess-results


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband