Fyrsta stúlkan tekur þátt í Skákþingi Vestmannaeyja.

  Þau undur og stórmerki hafa gerst að fyrsta stúlkan hefur skráð sig til þátttöku í Skákþingi Vestmannaeyja 2011, sem hefst í kvöld kl. 19:30.  Ekki er ritara þessarar færslu kunnugt um að það hafi nokkru sinni gerst áður í sögu þessa móts sem er þó líklega yfir 80 ára gamalt, að kona hafi áður tekið þátt í þinginu.

  Sú sem brýtur þetta blað er ung mær, Hafdís Magnúsdóttir 11 ára, fædd 1999, en Hafdís hefur um nokkurt skeið æft skák hjá félaginu.  Hún er af gamalgrónum Eyjaættum og voru forfeður hennar jafnan kenndir við húsið Fell.  Hafdís hafði mestar áhyggjur af því að hún kynni ekki að skrifa táknin fyrir leikina, en þetta er í fyrsta skipti sem hún teflir kappskák, en við erum vissir um að það mun ekki þvælast fyrir henni lengi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband