28.10.2010 | 22:10
Nökkvi Hausthraðskákmeistari Vestmannaeyja.
Í kvöld fór fram Hausthraðskákmeistaramót Vestmannaeyja. Tíu keppendur mættu til leiks og urðu feðgarnir knáu, Nökkvi og Sverrir efstir og jafnir með 8,5 vinningar af 9 mögulegum. Sverrir gaf innbyrðis einvígi þeirra á millum og stóð því Nökkvi uppi sem sigurvegari.
Hinn gamalkunni Eyjapeyji, Stefán Gíslason, bar sigurorð af hinum unga og efnilega Daða Stein Jónssyni í baráttu þeirra um þriðja sætið. Í fimmta sætinu varð einn af gömlu refunum, Einar Sigurðsson en í því sjötta hinn ungi og efnilegi Róbert Aron Eysteinsson. Aðrir voru neðar á lista.
|
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.