15.7.2010 | 12:55
Liðsauki í TV.
Nýr liðsauki hefur skolað á fjörur Taflfélags Vestmannaeyja, þar sem er norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2636) en hann hefur gengið í félagið og mun hann galvaskur tefla fyrir liðið í haust. Jon Ludvig er aðeins tvítugur að aldri og næstbesti skákmaður Norðmanna en hann hefur hingað til ( ! ) fallið í skuggann af stórstirninu Magnúsi Carlsen (2826).
Fyrir í liði TV eru stórmeistararnir Alexey Dreev (2660), Sebastien Maze (2573), Igor-Alexandre Nataf (2541) að ógleymdum Helga Ólafssyni (2527) auk alþjóðlega meistarans Nils Grandeliusar (2505), sem verður væntanlega útnefndur stórmeistari í haust, og Fide meistarans Þorsteins Þorsteinssonar (2231).
Væntir TV mikils af ofangreindum á næsta keppnistímabili.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.