15.4.2010 | 22:09
Björn Ívar sigraði á hraðskákmóti - Róbert stóð sig frábærlega
Í kvöld fór fram hraðskákmót og mættu 10 til leiks. Björn Ívar og Róbert tóku snemma forystu og vakti örugg taflmennska Róberts athygli. Þeir mættust í 6. umferð og hafði Björn Ívar sigur. Róbert lét það ekki hafa áhrif á sig og vann rest! Nökkvi og Einar fylgdu fast á hæla þeirra. Fjöldi ungra skákmanna mætti á mótið og var það jákvætt.
Lokastaðan:
1. Björn Ívar 9 v. af 9
2. Róbert Aron Eysteinsson 8 v.
3. Nökkvi Sverrisson 7 v.
4. Einar Sigurðsson 5,5 v.
5. Lárus Garðar Long 5 v.
6. Sigurður Magnússon 4,5 v.
7. Davíð Jóhannesson 3 v.
8. Indíana Guðný Kristinsdóttir 2 v.
9. Thelma Halldórsdóttir 1 v.
10. Jón Þór Halldórsson 0 v.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.