8.2.2010 | 18:30
Hugrenningar ,,hins unga" um Suðurlandsmótið
Í gær lauk Suðurlandsmeistaramótinu, sem í ár var haldið á Laugarvatni. Keppendur gistu á ,,Laugarvatn hostel", sem er prýðilegt gistiheimili staðsett í gamla pósthúsinu. Teflt var í sal hússins sem hýsti áður fyrr þá íbúa á svæðinu sem þurftu að hafa samskipti við umheiminn, hvort sem það var með bréfarskriftum eða símhringingum. Húsráðendur, hjónin Gunnar og Jóna, bjuggu vel að keppendum og eiga hrós skilið fyrir vinalega þjónustu á þessum skemmtilega stað.
Gengi Eyjamanna var til fyrirmyndar. Lokastaðan í mótinu ber þess vel merki þar sem þrír meðlimir TV röðuðu sér í efstu sætin - Björn Ívar, Þorsteinn og Sævar. Björn Ívar stóð að lokum uppi sem sigurverari eftir einvígi við Þorstein. Sverrir stóð sig einnig með mikilli prýði og lenti í 3. sæti í keppninni um Suðurlandsmeistaratitilinn, 6. sæti í heildina, en var í raun óheppinn með pörun í síðustu umferð eftir að hafa verið jafn 4 öðrum í efsta sæti eftir 6. umferð.
Ungu mennirnir stóðu sig vel. Nökkvi og Daði Steinn hlutu 3,5 vinning og skipuðu sér í 2. og 3. sætið í baráttunni um unglingaverðlaunin þar sem Nökkvi tók 2. sætið á stigum. Nökkvi var í raun óheppinn að fá ekki 4,5 vinning en yfirsjón í lokaumferðinni girti fyrir það. Róbert og Sigurður hlutu eldskírn sína á mótum sem þessu og mega vera ánægðir með árangurinn og vonandi nokkur skákstig í sarpinn.
Að öllum ólöstuðum vakti framganga Stefáns Gíslasonar mikla athygli en hann var með 3,5 vinning eftir 6 umferðir og átti möguleika á skiptu verðlaunasæti með sigri í síðustu umferð. Stefán fær mjög skemmtilegar og frumlegar hugmyndir við skákborðið og er vanur að lyfta skákmótahaldi á hærra stig með taflmennsku sinni. Hann gladdi hjörtu Eyjamanna, eins og ávallt, með sögum sínum og orðheppni í athyglisverðustu aðstæðum. Hrifning formannsins var svo mikil að hann fór fram á það að spakmæli Stefán yrðu skráð og gefin út! Hér læt ég fylgja nokkra af þeim gullmolum sem spruttu fram á varir Stefáns þegar best lét. Lesendur verða þó að gera sér grein fyrir að flest var sagt meira í gamni heldur en í alvöru.
,,Litlir leikir eru yfirleitt bestir!"
,,Staðan var svo traust að hún hélt allan tímann. Hún var eins og SS-hermenn, stóð þarna og starði." - Ummæli sem féllu eftir trausta taflmennsku Magnúsar varaforseta í tvískák.
,,Ég sé ekki einu sinni besta leikinn í þessu og hvað hef ég svo að gera í að tefla við sovéska skákskólann í fyrramálið?" - Átti að tefla við Grantas Grigorianis, miðaldra starfsmann Kjörís.
,,Þú verður að hafa 100% minni til þess að stúdera skák - og MUNA"
Magnús: ,,Stebbi, út með mennina!"
Stefán: ,,Útrásarvíkingana?"
,,Þú teflir aldrei betur en andstæðingurinn leyfir!"
,,Þú teflir aldrei betur en staðan leyfir!"
,,Þú teflir aldrei betur en þú sjálfur getur!"
,,2, 4, 6, 8, 10, 12 - þetta eru alltof mörg peð, þú mátt ekki vekja upp peð!"
Að lokum ber að hrósa Magnúsi Matthíassyni fyrir gott skipulag á mótshaldinu. Hann stendur sig undantekningalaust vel í hlutverki þess sem stjórnar og vafalaust eru þar þýsku genin sem skína í gegn.
Ég þakka öllum fyrir góða skákmótahelgi!
- BÍK
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.