Altmeister Bjarnason leiðir Suðurlandsmótið.

  Þá er 5 umferðum lokið á Suðurlandsmótinu sem fram fer á Laugarvatni og leiðir hinn viðkunnanlegi Altmeister Sævar Bjarnason mótið sem stendur, en aðrir keppendur hafa færri vinninga.

  Keppendur voru rétt í þessu að snæða hjá hinni matgóðu Jónu svínakjöt ásamt ávöxtum í rjóma og súpu að hætti Laugvetninga.  Matsalurinn er reyndar staðsettur nokkurn spöl frá keppnisstað, en þangað leiddi hópinn hinn skreflangi mótsstjóri Magnús Matthíasson, þó að leiðsögn til baka væri af skornum skammti og ekki ljóst hvort einhverjir verði úti á leið til baka.

  En sem sagt hér er bæði gott og gaman að vera og munu fréttir af næstu umferð, sem er rétt að hefjast fyrst birtast á SKAKEYJUNNI að venju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband