Taflfélagið í 2 sæti og fer upp um deild

Taflfélag Vestmannaeyja lenti í 2. sæti í þriðju deild á íslandsmóti skákfélaga sem lauk um síðustu helgi, en fyrri hluti mótsins fór fram í nóvember.

Félagið sendi tvær sex manna sveitir á mótið, aðra í 3ju deild en hina í fjórðu deild. Alls tóku 17 keppendur frá TV þátt í keppninni þessa helgi, en talsvert fleiri ef fyrri umferðin eer talin með. A Sveit TV endaði í öðru sæti af fjórtán sveitum í 3ju deild og teflir því í 2. deild næsta haust. Alls voru tefldar sjö umferðir og kom þessi góði árangur nokkuð á óvart, því eftir fyrri hlutann var sveitin í 7. sæti. Keppnin var mjög jöfn um 2. sætið og var sveit TV ½ vinningi fyrir ofan sveit Skagamanna þegar upp var staðið.

Í fjórðu deild gekk sveit TV einnig vel og endaði í 5. sæti af 14. Sveitir TV eru skipaðar félögum í TV, búsettum  í Eyjum eða uppi á landi. Á fyrsta borði tefldi Ægir Páll Friðbertsson og aðrir í liðinum voru þeir Nökkvi Sverrisson, Sigurjón Þorkelsson, Sverrir Unnarsson, Kristófer Gautason, Lúðvík Bergvinsson, Aron Ellert Þorsteinsson, Alexander Gautason, Hallgrímur Steinsson, Arnar Sigurmundsson, Andri Hrólfsson, Ólafur Hermannsson, Páll J. Ammendrup, Páll Ammendrup Ólafsson, Bjartur Týr Ólafsson og Sindri Freyr Guðjónsson.

Tefldu hver um sig ýmist 1, 2 eða 3 skákir um helgina. Liðstjórar voru Arnar Sigurmundsson í 3ju deild og Ólafur Hermannsson í 4. deild. Að sögn Arnars formanns TV, kallar þessi góði árangur á enn ríkari kröfur til okkar manna á næsta keppnistímabili, því sveitir í 2. deild á Íslandsmóti skákfélaga eru töluvert sterkari en í 3ju deild.  Á sama hátt verður spennandi verkefni að koma sveit TV í fjórðu deild upp í þriðju deild að ári.


Bloggfærslur 7. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband