Færsluflokkur: Íþróttir
28.1.2012 | 17:28
Skákþing Vestmannaeyja - 5. umferð
Á miðvikudag var tefld 5. umferð Skákþingsins og var hart barist að venju.
Sverrir sigraði Sigurð eftir að sá síðarnefndi sá ekki vörn gegn mátsókn í flókinni stöðu.
Jörgen stóð lengi í Kristófer en lék síðan illa af sér og tapaði. Jörgen búinn að tefla vel en vantar aðeins upp á heppni til að innbyrða punktana.
Michal og Stefán tefldu hörkuskák þar sem ekki var mikið spáð í liðsafla. Í miðtaflinu virtist Stefán vera á góðri leið með að innbyrða vinning en Michal sneri á hann og náði hættulegri sókn. Stefán gafst síðan upp í flókinni stöðu sem var alls ekki töpuð.
Gauti og Daði Steinn tefldu lengstu skák umferðarinnar og var lengi jafnt en Daði náði að snúa á formanninn í endataflinu og landa sigri.
Skák Nökkva og Einars var frestað.
í gær tefldu síðan Stefán og Jörgen Freyr frestaða skák úr 2. umferð þar sem Stefán sigraði eftir mikla baráttu.
Á morgun tefla Stefán og Nökkvi frestaða skák úr 3. umferð
úrslit 4. umferðar
Nafn | Stig | úrslit | Nafn | Stig |
Nökkvi Sverrisson | 1930 | frestað | Einar Guðlaugsson | 1928 |
Kristófer Gautason | 1664 | 1 - 0 | Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 |
Michal Stariosta | 0 | 1 - 0 | Stefán Gíslason | 1869 |
Sigurður A Magnússon | 1367 | 0 - 1 | Sverrir Unnarsson | 1946 |
Karl Gauti Hjaltason | 1564 | 0 - 1 | Daði Steinn Jónsson | 1695 |
staðan eftir 5. umferð
Sæti | Nafn | Stig | Vin | SB | |
1 | Sverrir Unnarsson | 1946 | 4½ | 8,25 | |
2 | Einar Guðlaugsson | 1928 | 4 | 8,00 | 1 frestuð |
3 | Michal Stariosta | 0 | 3 | 4,50 | |
4 | Karl Gauti Hjaltason | 1564 | 2½ | 6,25 | |
5 | Daði Steinn Jónsson | 1695 | 2½ | 5,25 | |
6 | Nökkvi Sverrisson | 1930 | 2½ | 4,75 | 2 frestaðar |
7 | Kristófer Gautason | 1664 | 2½ | 3,25 | |
8 | Stefán Gíslason | 1869 | 1½ | 1,75 | 1 frestuð |
9 | Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | 0 | 0,00 | |
Sigurður A Magnússon | 1367 | 0 | 0,00 |
6. umferð - miðvikudaginn 1. febrúar
Nafn | Stig | Nafn | Stig | |
Einar Guðlaugsson | 1928 | - | Daði Steinn Jónsson | 1695 |
Sverrir Unnarsson | 1946 | - | Karl Gauti Hjaltason | 1564 |
Stefán Gíslason | 1869 | - | Sigurður A Magnússon | 1367 |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | - | Michal Stariosta | 0 |
Nökkvi Sverrisson | 1930 | - | Kristofer Gautason | 1664 |
chess-results
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2012 | 12:50
Skákþing Vestmannaeyja - Einar efstur eftir 4. umferð
Í gær fór fram fjórða umferð Skákþingsins og voru tefldar 4 skákir. Eftir fjórar umferðir er Einar efstur og hefur sigrað í öllum sínum skákum.
Um daginn voru tefldar 2 skákir en Daði Steinn hirti vinning af Sigurði sem mætti ekki til skákarinnar, Sverrir vann Stariosta og Nökkvi vann Jörgen Frey. Um kvöldið sigraði síðan Einar Karl Gauta og Kristófer og Stefán gerðu jafntefli.
Úrslit 4. umferðar
Nafn | Stig | Úrsl | Nafn |
Einar Guðlaugsson | 1928 | 1 - 0 | Karl Gauti Hjaltason |
Daði Steinn Jónsson | 1695 | + - - | Sigurður A Magnússon |
Sverrir Unnarsson | 1946 | 1 - 0 | Michal Stariosta |
Stefán Gíslason | 1869 | ½ - ½ | Kristófer Gautason |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | 0 - 1 | Nökkvi Sverrisson |
Staðan eftir 4. umferð
Sæti | Nafn | Stig | FED | V | SB | |
1 | Einar Guðlaugsson | 1928 | ISL | 4 | 7,00 | |
2 | Sverrir Unnarsson | 1946 | ISL | 3½ | 5,25 | |
3 | Karl Gauti Hjaltason | 1564 | ISL | 2½ | 4,75 | |
4 | Nökkvi Sverrisson | 1930 | ISL | 2½ | 3,25 | 1 frestuð |
5 | Michal Stariosta | 0 | POL | 2 | 2,00 | |
6 | Daði Steinn Jónsson | 1695 | ISL | 1½ | 1,75 | |
7 | Kristófer Gautason | 1664 | ISL | 1½ | 1,75 | |
8 | Stefán Gíslason | 1869 | ISL | ½ | 0,75 | 2 frestaðar |
9 | Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | ISL | 0 | 0,00 | 1 frestuð |
10 | Sigurður A Magnússon | 1367 | ISL | 0 | 0,00 |
5. umferð - miðvikudaginn 25. janúar kl. 19:30
Nafn | Stig | Úrsl | Nafn | Stig |
Nökkvi Sverrisson | 1930 | Einar Guðlaugsson | 1928 | |
Kristófer Gautason | 1664 | Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | |
Michal Stariosta | 0 | Stefán Gíslason | 1869 | |
Sigurður A Magnússon | 1367 | Sverrir Unnarsson | 1946 | |
Karl Gauti Hjaltason | 1564 | Daði Steinn Jónsson | 1695 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2012 | 21:05
Skákþing Vestmannaeyja 4. umferð
4. umferð Skákþing Vestmannaeyja verður tefld á morgun sunnudag kl. 14.
Pörun 4. umferðar
Einar - Karl Gauti
Daði Steinn - Sigurður Arnar
Sverrir - Michal
Stefán - Kristófer
Jörgen - Nökkvi
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2012 | 12:21
Skákþing 3. umferð
Þriðja umferð Skákþingsins fór fram í gærkvöldi og voru tefldar 2 skákir. Sverrir hafði svart gegn Kristófer og tefldu þeir franska vörn. Sverrir náði peði í miðtafli og eftir mikil uppskipti var sigurinn hans.
Michal hafði hvítt á Daða Stein og tefldu þeir heilmikil sóknarskák með flóknum stöðum, þar sem þeir skiptust á að eiga betra. Daði Steinn tefldi fremur óvarlega og Michal nýtti sér það á réttum tíma og þegar komið var út í endatafl hafði Michal biskup og sex peð á móti hrók og fjórum peðum. Í þessari stöðu gætti Daði Steinn ekki að sér og tókst Michal að króa hrók hans af og nýttist hann ekki eftir það. Þá reyndi Daði Steinn að sprengja upp peðastöðu hvíts, en þurfti að gefa tvö peð fyrir líf hróksins og þá var ekki að sökum að spyrja að skákin var töpuð.
Einar Guðlaugs og Karl Gauti fengu vinning þar sem mótherjar þeirra mættu ekki.
Úrslit 3. umferðar.
Name | Rtg | Res. | Name | Rtg |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | - - + | Einar Guðlaugsson | 1928 |
Nökkvi Sverrisson | 1930 | frestað | Stefán Gíslason | 1869 |
Kristófer Gautason | 1664 | 0 - 1 | Sverrir Unnarsson | 1946 |
Michal Starosta | 0 | 1 - 0 | Daði Steinn Jónsson | 1695 |
Sigurður A Magnússon | 1367 | - - + | Karl Gauti Hjaltason | 1564 |
Staðan eftir 3. umferð:
Rank | Name | Rtg | Pts | SB | |
1 | Einar Guðlaugsson | 1928 | 3 | 3,00 | |
2 | Karl Gauti Hjaltason | 1564 | 2½ | 4,50 | |
3 | Sverrir Unnarsson | 1946 | 2½ | 2,25 | |
4 | Michal Starosta | 0 | 2 | 1,00 | |
5 | Nökkvi Sverrisson | 1930 | 1½ | 1,75 | 1 frestuð |
6 | Kristófer Gautason | 1664 | 1 | 1,25 | |
7 | Daði Steinn Jónsson | 1695 | ½ | 0,50 | |
8 | Stefán Gislason | 1869 | 0 | 0,00 | 2 frestaðar |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | 0 | 0,00 | 1 frestuð | |
Sigurður A Magnússon | 1367 | 0 | 0,00 |
4. umferð - sunnudaginn 22. janúar kl. 14
Name | Rtg | Res. | Name | Rtg |
Einar Guðlaugsson | 1928 | kl. 18 | Karl Gauti Hjaltason | 1564 |
Daði Steinn Jónsson | 1695 | - | Sigurður A Magnússon | 1367 |
Sverrir Unnarsson | 1946 | - | Michal Starosta | 0 |
Stefán Gislason | 1869 | - | Kristófer Gautason | 1664 |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | - | Nökkvi Sverrisson | 1930 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2012 | 08:49
Skákþing Vestmannaeyja 2. umferð
Önnur umferð skákþingsins fór fram í gær og voru tefldar 3 skákir, en tveimur var frestað.
Feðgarnir, Sverrir og Nökkvi mættust og sömdu jafntefli eftir að upp kom staða þar sem Nökkvi gat átt góða möguleika á betri stöðu ef hann hefði skipt upp hrókasamstæðunni fyrir drottningu. Karl Gauti og Michael hófu sína skák og var allt með kyrrum kjörum þegar sími Michaels hringdi og skákinni var þar með lokið. Sigurður sá ekki til sólar á móti Einari. Öllum skákum 2 umferðar skal lokið fyrir miðvikudag.
Úrslit 2. umferðar:
Name | Rtg | Res. | Name | Rtg |
Einar Guðlaugsson | 1928 | 1 - 0 | Sigurður A Magnússon | 1367 |
Karl Gauti Hjaltason | 1564 | 1 - 0 | Michael Starosta | 0 |
Daði Steinn Jónsson | 1695 | frestað | Kristófer Gautason | 1664 |
Sverrir Unnarsson | 1946 | ½ - ½ | Nökkvi Sverrisson | 1930 |
Stefán Gíslason | 1869 | frestað | Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 |
3. umferð miðvikudaginn 18. janúar kl. 19:30:
Name | Rtg | Res. | Name | Rtg |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | - | Einar Guðlaugsson | 1928 |
Nökkvi Sverrisson | 1930 | - | Stefán Gíslason | 1869 |
Kristófer Gautason | 1664 | - | Sverrir Unnarsson | 1946 |
Michael Starosta | 0 | - | Daði Steinn Jónsson | 1695 |
Sigurður A Magnússon | 1367 | - | Karl Gauti Hjaltason | 1564 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2012 | 08:50
Skákþing Vestmannaeyja hófst í kvöld
Skákþing Vestmannaeyja hófst í gærkvöldi. 10 taka þátt að þessu sinni og ákveðið var að tefla lokað mót, þannig að allir tefla við alla. Björn Ívar Karlsson er ekki með að þessu sinni, en hann hefur borið sigur úr býtum undanfarin ár.
Stefán og Einar tefldu ágæta skák framan af en í miðtaflinu var Stefán sleginn blindu og tapaði manni og gafst upp stuttu seinna.
Jörgen átti fína skák og átti ágæta möguleika gegn Sverri í miðtaflinu eftir að hafa gefið peð í byrjun, en misst taktinn og fékk tapað endatafl.
Nökkvi og Daði Steinn tefldu hörkuskák þar sem Daði Steinn varðist vel og var kominn með ágæt færi í miðtaflinu en tapaði síðan peði og þar með skákinni.
Kristófer og Gauti tefldu lengstu skák umferðarinnar þar sem Gauti tapaði manni í miðtaflinu en fékk 2 peð uppí hann og virtist ekki hafa mikla möguleika, en náði að snúa á soninn og gera peðin að stórhættulegum uppvakningum og fékk að lokum hálfan punkt.
Michal og Sigurður Arnar tefldu hörkuskák þar sem peð eða menn voru ekki talin heldur allt gefið fyrir færin og var mikið fjör í gangi. Að lokum missti Sigurður af góðri leið sem Michal nýtti sér vel og fékk mátsókn sem ekki varð stöðvuð.
Úrslit 1. umferðar:
Name | Rtg | Res. | Name | Rtg |
Stefán Gíslason | 1869 | 0 - 1 | Einar Guðlaugsson | 1928 |
Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 | 0 - 1 | Sverrir Unnarsson | 1946 |
Nökkvi Sverrisson | 1930 | 1 - 0 | Daði Steinn Jónsson | 1695 |
Kristófer Gautason | 1664 | ½ - ½ | Karl Gauti Hjaltason | 1564 |
Michal Starosta | 0 | 1 - 0 | Sigurður A Magnússon | 1367 |
2. umferð - sunnudaginn 15. janúar kl. 14:00
Name | Rtg | Res. | Name | Rtg |
Einar Guðlaugsson | 1928 | - | Sigurður A Magnússon | 1367 |
Karl Gauti Hjaltason | 1564 | - | Michal Starosta | 0 |
Daði Steinn Jónsson | 1695 | - | Kristófer Gautason | 1664 |
Sverrir Unnarsson | 1946 | - | Nökkvi Sverrisson | 1930 |
Stefán Gíslason | 1869 | - | Jörgen Freyr Ólafsson | 1167 |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2012 | 09:27
Skákþingið hefst á morgun.
Skákþing Vestmannaeyja fyrir árið 2012 hefst á morgun, miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:30. Rétt er að taka það fram að þeir sem ekki mæta í fyrstu umferð eða tilkynna frestun á fyrstu skák verða ekki með á mótinu.
Tefldar verða 9 umferðir monrad - fer þó eftir þátttöku.
Tímamörk verða 90 mínútur á skák + 30 sek. í uppbótartíma á hvern leik.
Mótið verður reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Athugið að spurt er um hver muni sigra skákþingið 2012 - Sjá hér til vinstri.
Dagskrá (gæti breyst)
1. umf. miðvikudag 11. jan. kl. 19:30
2. umf. sunnudag 15. jan. kl. 14:00
3. umf. miðvikudag 18. jan. kl. 19:30
4. umf. sunnudag 22. jan. kl. 14:00
5. umf. miðvikudag 25. jan. kl. 19:30
6. umf. miðvikudag 1. febr. kl. 19:30
7. umf. miðvikudag 8. febr. kl. 19:30
8. umf. miðvikudag 15. febr. kl. 19:30
9. umf. miðvikudag 22. febr. kl. 19:30
Skráðir keppendur (11 talsins hinn 10/1 2012):
Sverrir Unnarsson (1946)
Nökkvi Sverrisson (1930)
Einar B. Guðlaugsson (1928)
Stefán Gíslason (1869)
Daði Steinn Jónsson (1695)
Þórarinn I. Ólafsson (óstaðfest) (1678)
Kristófer Gautason (1664)
Karl Gauti Hjaltason (Ísl. 1564)
Róbert Aron Eysteinsson (óstaðfest) (Ísl. 1412)
Sigurður Arnar Magnússon (Ísl. 1367)
Eyþór Daði Kjartansson (Ísl. 1241)
Jörgen Freyr Ólafsson (Ísl. 1167)
Guðlaugur Gísli Guðmundsson (óstaðfest) (1110)
Hafdís Magnúsdóttir (óstaðfest)
Mikhael Starosta ( 0)
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2012 | 08:50
Skákþingið hefst eftir 6 daga.
Skákþing Vestmannaeyja fyrir árið 2012 hefst miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:30. Rétt er að taka það fram að þeir sem ekki mæta í fyrstu umferð eða tilkynna frestun á fyrstu skák verða ekki með á mótinu.
Tefldar verða 9 umferðir monrad - fer þó eftir þátttöku.
Tímamörk verða 90 mínútur á skák + 30 sek. í uppbótartíma á hvern leik.
Mótið verður reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Athugið að spurt er um hver muni sigra skákþingið 2012 - Sjá hér til vinstri.
Dagskrá (gæti breyst)
1. umferð miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:30
2. umferð sunnudaginn 15. janúar kl. 14:00
3. umferð miðvikudaginn 18. janúar kl. 19:30
4. umferð sunnudaginn 22. janúar kl. 14:00
5. umferð miðvikudaginn 25. janúar kl. 19:30
6. umferð miðvikudaginn 1. febrúar kl. 19:30
7. umferð miðvikudaginn 8. febrúar kl. 19:30
8. umferð miðvikudaginn 15. febrúar kl. 19:30
9. umferð miðvikudaginn 22. febrúar kl. 19:30
Skráðir keppendur (11 talsins hinn 5/1 2012):
Sverrir Unnarsson (1946)
Nökkvi Sverrisson (1930)
Einar B. Guðlaugsson (1928)
Stefán Gíslason (1869)
Daði Steinn Jónsson (1695)
Þórarinn I. Ólafsson (óstaðfest) (1678)
Kristófer Gautason (1664)
Karl Gauti Hjaltason (Ísl. 1564)
Róbert Aron Eysteinsson (óstaðfest) (Ísl. 1412)
Sigurður Arnar Magnússon (Ísl. 1367)
Eyþór Daði Kjartansson (Ísl. 1241)
Jörgen Freyr Ólafsson (Ísl. 1167)
Guðlaugur Gísli Guðmundsson (óstaðfest) (1110)
Hafdís Magnúsdóttir (óstaðfest)
Mikhael Starosta ( 0)
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2012 | 09:28
Skák í kvöld kl. 19:31
Í kvöld munum við hittast og taka stutt skákmót.
Þetta er síðasta miðvikudagskvöldið fyrir Skákþingið sem hefst næsta miðvikudag 11 janúar. Það er því rétt að liðka aðeins fingurna og svo þeir sem ekki eru búnir að skrá sig geri það núna.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2012 | 13:56
Skákþing 2012 - hefst 11 janúar.
Skákþing Vestmannaeyja fyrir árið 2012 hefst miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:30.
Tefldar verða 9 umferðir monrad - fer þó eftir þátttöku.
Tímamörk verða 90 mínútur á skák + 30 sek. í uppbótartíma á hvern leik.
Mótið verður reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Athugið að spurt er um hver muni sigra skákþingið 2012 - Sjá hér til vinstri.
Dagskrá (gæti breyst)
1. umferð miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:30
2. umferð sunnudaginn 15. janúar kl. 14:00
3. umferð miðvikudaginn 18. janúar kl. 19:30
4. umferð sunnudaginn 22. janúar kl. 14:00
5. umferð miðvikudaginn 25. janúar kl. 19:30
6. umferð miðvikudaginn 1. febrúar kl. 19:30
7. umferð miðvikudaginn 8. febrúar kl. 19:30
8. umferð miðvikudaginn 15. febrúar kl. 19:30
9. umferð miðvikudaginn 22. febrúar kl. 19:30
Skráðir keppendur (11 talsins hinn 2/1 2012):
Sverrir Unnarsson (1946)
Nökkvi Sverrisson (1930)
Einar B. Guðlaugsson (1928)
Stefán Gíslason (1869)
Daði Steinn Jónsson (1695)
Þórarinn I. Ólafsson (óstaðfest) (1678)
Kristófer Gautason (1664)
Karl Gauti Hjaltason (Ísl. 1564)
Sigurður Arnar Magnússon (Ísl. 1367)
Eyþór Daði Kjartansson (Ísl. 1241)
Jörgen Freyr Ólafsson (Ísl. 1167)
Hafdís Magnúsdóttir (óstaðfest)
Mikhael Starosta ( 0)
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)