ÍBV með sveit á Landsmóti UMFÍ

N.k. föstudag hefst á Akureyri Landsmót UMFÍ og hefur ÍBV ákveðið að senda skáksveit til keppni. Þegar skráningu er lokið hafa 11 sveitir boðað þátttöku. Tefldar verða atskákir á mótinu (15-60 mín) og líklega tefla allar sveitir saman.

 Lið ÍBV

  1. Björn Ívar Karlsson
  2. Einar Kristinn Einarsson
  3. Sverrir Unnarsson
  4. Nökkvi Sverrisson

Fyrsta umferð hefst kl. 13 á föstudag og verður teflt til ca 18. Á laugardag hefst taflmennskan kl 13.

Við munum reyna að fylgjast með gengi okkar manna hér á síðunni og koma með úrslit eins fljótt og hægt er.

  Takið þátt í könnun hér til vinstri um skákmótið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband