Volcanomót TV á morgun kl. 12:00

  Á morgun, gamlársdag fer fram fjórða Volcanomót Taflfélags Vestmannaeyja á veitingastaðnum Volvano við Strandveg í Vestmannaeyjum og hefst mótið kl. 12:00.

  Volcanomótið er nú orðið árviss viðburður í skáklífi Vestmannaeyja, en í fyrra fór allur ágóði af mótinu til styrktar Steingrími Jóhannessyni, sem þá barðist við veikindi.

  Í ár verður mótið með hefðbundnu sniði og gefur veitingastaðurinn öll helstu verðlaun.

  Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband