Sigurjón skákmeistari Vestmannaeyja 2017

  Hinn 8. janúar hófst skákþing Vestmannaeyja 2017 og lauk mótinu í gærkvöldi 9. febrúar. Þáttakendur voru sex og tefldar voru tvær umferðir með 60 mínútna umhugsunartíma auk 30 sek. á hvern leik.

  Sigurvegari og Skákmeistari Vestmannaeyja 2017 varð Sigurjón Þorkelsson, en hann hlaut 9 vinninga af 10 mögulegum.  Í öðru sæti varð Einar B. Guðlaugsson með 7,5 vinninga og í þriðja sæti varð Stefán Gíslason fráfarandi meistari með 5 vinninga.

  Sigurjón er nú meistari í 12 sinn, en hann varð fyrst Skákmeistari Vestmannaeyja 1986 og síðast 2006 og hefur orðið meistari oftar en nokkur annar.  Einar B. Guðlaugsson varð Skákmeistari Vestmannaeyja á árunum 1965 til 1968 eða 4 ár í röð. Aðrir keppendur voru Arnar Sigurmundsson, Gísli Eiríksson og Þórarinn I. Ólafsson, allt gamalkunnar kempur úr félaginu.

Mótstafla

 

 

 

EBG

SG

AS

ÞIÓ

GEi

Alls

1

Sigurjón

X

1 / 1

1/ 1

1 / ½

1 / ½

1 / 1

9

2

Einar

0 / 0

X

1 / 1

1 / ½

1 / 1

1 / 1

7,5

3

Stefán

0 / 0

0 / 0

X

1 / ½

½ / 1

1 / 1

5

4

Arnar

0 / ½

0 / ½

0 / ½

X

½ / ½

1 / 1

4,5

5

Þórarinn

0 / ½

0 / 0

½ / 0

½ / ½

X

1 / 1

4

6

Gísli

0 / 0

0 / 0

0 / 0

0 / 0

0 / 0

X

0

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband